Jafnt á White Hart Lane

0
565

Tottenham og Manchester United skildu jöfn þegar meistararnir heimsóttu Tottenham á White Hart Lane. Liðin mættust í annað sinn á einni viku en fyrri leiknum lauk með sigri United í FA bikarnum. Í þetta sinn leit allt út fyrir að Tottenham væri að leggja United að velli en gestirnir jöfnuðu á lokamínútunni í uppbótartíma og nældu í óverðskuldað stig enda Tottenham verið mun betri í leiknum. Berbatov kom Tottenham yfir en jöfnunarmarkið var sjálfsmark frá Dawson þó það sé af sumum fréttamiðlum eignað Tevez.

     Ramos gerði breytingu á vörninni frá síðasta leik. Hutton spilaði sinn fyrsta leik eftir að hafa gengið til liðs við Tottenham frá Rangers og Woodgate lék sinn fyrsta heimaleik fyrir liðið en þetta var annar leikur hans þar sem hann spilaði gegn Everton í vikunni. Liðið var því skipað þannig að Cerny stóð á milli stanganna, Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda skipuðu vörnina en Chimbonda stóð sig vel í stöðu vinstri bakvarðar. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Huddlestone og Malbranque og frammi þeir Berbatov og Keane. Bekkurinn var skipaður þeim Robinson, Lee, Boateng, Taarabt og O´Hara.

     Á fyrsta korteri leiksins náði hvorugt liðið að skapa sér hættulegt færi en Tottenham komst þó næst því eftir góðan sprett frá Berbatov á vinstri kantinum en fyrirgjöfin var hreinsuð af Hargreaves. En á 20.mínútu dró til tíðinda. Jenas tók á sprett upp hægri kantinn og Hargreaves fylgdi vel á eftir og virtist fella hann inni í teignum en dómarinn dæmdi ekki víti. Lennon hafði þó fylgt Jenas eftir og náði boltanum upp við endalínuna og gaf fyrir markið. Van der Sar náði að snerta boltann en boltinn barst þá til Berbatov sem átti ekki í vandræðum með að koma honum í markið. Staðan orðin 1-0 og gífurleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane. Tottenham virtist mun sterkara liðið og héldu vel aftur af meisturunum. Dawson átti hættulegan skalla að marki United eftir hornspyrnu frá Lennon en boltinn fór framhjá. Einnig átti Berbatov upplagt tækifæri eftir að Lennon tók sprett upp hægri kantinn og gaf fyrir á Berbatov sem var í vítateignum fyrir miðju markinu en Berbatov skaut vel yfir. Rétt fyrir hálfleik var Lennon klipptur niður af Hargreaves rétt fyrir utan teig og þótti hann sleppa vel að fá ekki spjald fyrir brot sitt. Huddlestone tók aukaspyrnuna en náði ekki að koma boltanum framhjá Van der Sar. Staðan í hálfleik 1-0 fyrir heimamenn.

     Tottenham hélt áfram uppteknum hætti í seinni hálfleik og byrjaði mun betur en United en sóknir gestanna voru ekki hættulegar það sem liðið var af leik. Huddlestone átti þrumuskot að marki sem fór í United leikmann og framhjá en stuttu síðar fékk Keane eitt besta færi leiksins og fór ansi illa að ráði sínu. Berbatov gaf góða sendingu á Keane sem var nánast einn á móti markverðinum en hann tók viðstöðulaust skot að markinu sem endaði beint í höndum Van der Sar. Ferguson sá fram á að þörf var á breytingum og gerði 3 skiptingar í seinni hálfleik og inná komu Carrick, Nani og Anderson. En Tottenham hélt áfram að pressa og reyna að ná að bæta við marki og voru Lennon og Hutton hættulegir fram á við á hægri kantinum og Malbranque stóð sig vel á þeim vinstri. Dawson skoraði svo mark á 69.mínútu en markið dæmt af þar sem Dawson braut á Van der Sar. Leikurinn var orðinn mjög harður undir lokin og gulu spjöldin fóru oft á loft og í sumum tilfellum töldust leikmenn heppnir að liturinn var ekki annar á þeim. Huddlestone átti annað þrumuskot að marki á 74 mínútu en varnarmaður United komst á milli og boltinn fór því framhjá. United sótti í sig veðrið þegar líða tók að lokum leiksins og Anderson átti skot að marki sem leit út fyrir að vera á leiðinni inn en Cerny varði meistaralega. Þegar 12 mínútur voru eftir af leiknum gerði Ramos breytingu á liðinu, tók Lennon út af og setti Boateng inná í staðinn enda United menn farnir að pressa mun meira að marki. Þegar 6 mínútur voru til leiksloka vildu leikmenn Manchester fá vítaspyrnu þegar Rooney féll inni í teig en Clattenburg var með hlutina á hreinu og bókaði Rooney fyrir leikaraskap og sjónvarpsupptökur sýndur að þetta var hárrétt ákvörðun enda engin snerting frá Dawson. Pressan frá United varð meiri og meiri eftir því sem minna var til leiksloka en vörn Tottenham hélt vel. Á lokamínútu venjulegs leiktíma kom önnur skipting Tottenham en þá fór Keane út af og inná kom O´Hara. En á lokasekúndum uppbótartíma fékk Manchester hornspyrnu og Dawson varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net en á sumum miðlum er markið skráð á Tevez. Í viðtali hefur Ramos þó sagt að Dawson hafi viðurkennt að boltinn fór af honum og í netið og því deildu liðin með sér stigunum í þessum leik. Mikil vonbrigði fyrir leikmenn Tottenham sem höfðu barist vel og verið mun betri aðilinn í leiknum og áttu svo sannarlega skilið öll 3 stigin. En leikurinn er ekki búinn fyrir en dómarinn flautar og jafntefli því lokaúrslit leiksins.

 

Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson, Woodgate, Chimbonda, Lennon (Boateng), Jenas, Huddlestone, Malbranque, Keane (O´Hare), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Robinson, Lee, Taarabt.