Jafnt á WHL í spennandi leik

0
612
Tottenham og Portsmouth skildu jöfn í spennandi leik á White Hart Lane. Leikurinn var sá fyrsti milli liðanna frá því að Redknapp tók við stjórn Tottenham og keypti af Portsmouth Jermaine Defoe. Áhorfendur mættu vel stemmdir til leiks og sama má segja um leikmenn beggja liða sem börðust vel og voru staðráðnir í að fá eitthvað út úr leiknum. Liðin þurftu að sætta sig við að deila stigunum en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. David Nugent kom Portsmouth yfir með fyrsta marki sínu í deildinni en Jermaine Defoe jafnaði leikinn fyrir Tottenham. Með jafnteflinu lyfti Tottenham sér af botni deildarinnar upp í 16.sætið en er þó jafnt liðunum í 17.-20.sæti að stigum en með betri markatölu..

 

Harry stillti upp sterku liði og hélt sig við leikkerfið 4-4-2. Í markinu stóð Gomes þrátt fyrir örlítil meiðsli sem hann varð fyrir í síðasta leik. Vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Bale og á miðjunni léku þeir Lennon, Zokora, Modric og O´Hara. Í fremstu línu léku þeir Pavlyuchenko og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Dawson, Huddlestone, Bentley, Taarabt, Campbell og Bent.

 

Fyrsta almennilega færi leiksins fékk Defoe gegn sínum fyrri félögum. Á 9.mínútu nýtti hann sér mistök Davis hjá Portsmouth og náði boltanum, hljóp að marki og skaut en boltinn fór rétt framhjá markinu. Stuttu síðar fengu Portsmouth menn hættulegt færi á hinum enda vallarins þegar Gomes náði ekki að halda boltanum þegar hann varði skot frá Johnson. Crouch var ekki langt frá því að ná boltanum en snögg viðbrögð Gomes komu í veg fyrir það því hann náði að kýla boltann frá fótum Crouch. Eftir tuttugu mínútna leik tók Lennon á sprett upp völlinn og lét vaða að marki en James varði boltann aftur fyrir endamörk. O´Hara tók hornspyrnuna og gaf fyrir markið þar sem Woodgate stökk manna hæstur og skallaði boltann áfram á fjarstöngina þar sem Pavlyuchenko skaut að marki. Svo óheppilega vildi þó til að Defoe varð fyrir skotinu og því fór boltinn ekki inn. James varði svo meistaralega stuttu síðar þegar Defoe skallaði að marki eftir fyrirgjöf frá Lennon. Á hinum enda vallarins fengu leikmenn Pompey hættulegt færi þegar Nugent komst inn fyrir vörn Tottenham og gaf síðan boltann á Traore sem fylgdi Nugent eftir. Traore var nánast einn á móti Gomes þegar Corluka kom á sprettinum og sparkaði boltanum aftur fyrir endamörk. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum varð Tottenham fyrir áfalli þegar liðið missti Pavlyuchenko af velli sökum meiðsla eftir slæma tæklingu frá fyrrum spursaranum Sean Davis, en Bent kom inná í hans stað. Stuttu seinna varði James vel skot King eftir sendingu frá Corluka. Kaboul og O´Hara áttu báðir skot í hliðarnetið á sitthvorum enda vallarins áður en Tottenham neyddist til að gera aðra breytingu á liðinu þegar stutt var eftir af fyrri hálfleik. Ledley King varð fyrir meiðslum í nára og þurfti að yfirgefa völlinn og Dawson kom inná í hans stað. Síðasta færi hálfleiksins fengu gestirnir þegar Nugent komst í upplagt færi, einn á móti Gomes en Gomes stóð fyrir sínu og varði meistaralega. Staðan var því jöfn í hálfleik 0-0.

 

Bæði lið komu til leiks í síðari hálfleik staðráðin í að hirða öll stigin í þessari viðureign enda bæði í neðri hluta deildarinnar þar sem hvert stig skiptir máli. Þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum komst Lennon inn í teig Portsmouth manna og skaut að marki. Boltinn fór þó í Distin og breytti um stefnu og virtist vera á leið í markið þegar James kom til bjargar. James kom boltanum strax í leik upp vinstri kantinn, þaðan fór boltinn yfir á hægri helming vallarins við vítateig Tottenham þar sem Nugent skaut þrumuskoti að marki og skoraði framhjá Gomes í bláhornið. Staðan því orðin 0-1 gestunum í vil. Tap var þó eitthvað sem leikmenn Tottenham kærðu sig ekki um og tók það liðið aðeins 10 mínútur til að jafna leikinn á ný. Modric gaf glæsilega sendingu á Defoe rétt fyrir utan teig og sá síðarnefndi skaut að marki í gegnum klofið á Campbell og í netið framhjá James og var honum vel fagnað af stuðningsmönnum Tottenham. Eftir jöfnunarmarkið virtust leikmenn Tottenham líklegri til að bæta við marki og komst Corluka nálægt því stuttu eftir jöfnunarmark Defoe en boltinn fór rétt framhjá. Þegar rúmlega tuttugu mínútur voru til loka leiks gerði Redknapp sína þriðju og síðustu breytingu á liðinu þegar hann tók Bale af velli og setti Bentley inná í hans stað. Bentley fór þá á vinstri kantinn og O´Hara bakkaði í vinstri bakvörðinn. Á 75.mínútu fengu leikmenn Tottenham aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem Bentley tók og skaut að marki en James varði vel. Hornspyrnuna tók Bentley sjálfur og barst boltinn til Corluka sem skaut að marki á fjærstöngina. James var fjarri því að ná til boltans en honum til lukku voru tveir leikmenn Portsmouth á fjærstönginni sem náðu að skalla boltann í burtu. Besta færi Tottenham til að hirða öll þrjú stigin fékk svo án efa Darren Bent. Bentley gaf góða sendingu fyrir markið frá vinstri kantinum og var Bent vel staðsettur fyrir framan markið og þurfti aðeins að skalla beint í netið. Honum brást þó bogalistin og skalli hans fór framhjá markinu. Stuttu síðar fékk Defoe svo tækifæri til að bæta við öðru marki sínu eftir sendingu frá Corluka en skot hans fór vel framhjá markinu. Leiknum lauk því með jafntefli 1-1 í spennandi leik þar sem nóg var um marktækifæri en einungis tvö mörk skoruð.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King(Dawson), Bale(Bentley), Lennon, Zokora, Modric, O´Hara, Pavlyuchenko(Bent), Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Huddlestone, Taarabt, Campbell.

 

S.A.J.