Tottenham lék næst síðasta æfingarleik sinn í gær gegn Borussia Dortmund í Þýskalandi. Leikurinn var ágætur og áttum við meira í leiknum ef eitthvað var. Murphy skoraði beint úr aukaspyrnu en það var dæmt af vegna meintrar rangstöðu Ekotto. Murphy þótt spila vel í leiknum. Dortmund komst yfir á 36. mínútu með marki frá Frei. Á 43. mínútu gerði Berbatov jöfnunarmarkið (það er hægt að sjá það á spjallinu) og þar við sat. Allir leikmennirnir sem fengu lengra frí vegna þátttöku í HM byrjuðu inná í þesum leik. Þar á meðal var Robinson sem var að spila sinn fyrsta leik. Síðasti æfingarleikur liðsins fyrir tímabilið er á sunnudaginn á White Hart Lane. Andstæðingarnir verða Real Sociedad og hefst leikurinn kl 14:00 að íslenskum tíma.
Liðið: Robinson, Lee (Stalteri 62), Assou-Ekotto, Zokora (Huddlestone 76), Dawson, Davenport, Lennon (Defoe 57), Jenas (Ghaly 62), Berbatov (Routledge 75), Keane, Murphy (Ziegler 57). Ónotaðir varamenn: Cerny, Gardner.






