Segja má að staðan sé jöfn í hálfleik í undanúrslitum Carling Cup eftir leik Arsenal og Tottenham. Fyrri leikurinn var á Emirates og lauk með 1-1 jafntefli en síðari leikurinn fer fram á White Hart Lane eftir hálfan mánuð. Jenas kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik en Walcott jafnaði 11 mínútum fyrir leikslok og skildu liðin því jöfn og má búast við hörku leik í síðari viðureign liðanna.
Ramos tefldi fram nánast sínu sterkasta liði en mesta athygli vakti að Robinson var settur á bekkinn og Cerny byrjaði í marki. Robinson átti slæman leik gegn Reading í bikarnum sl. laugardag og Cerny byrjaði því í marki. Vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, King og Lee og á miðjunni spiluðu Lennon, Jenas, O´Hara og Malbranque. Frammi byrjuðu þeir Berbatov og Keane en Defoe var á bekknum ásamt Robinson, Stalteri, Taarabt og Boateng.
Fyrsta hættulega færi leiksins átti Ledley King þegar hann tók á sprettinn frá sínum eigin vallarhelmingi og hljópa alla leið að markinu en þar var komið í veg fyrir skot hans. Á 14.mínútu fengu leikmenn Arsenal gott færi en Cerny sýndi að hann kann einnig að verja og brást vel við skalla Bentner og varði það aftur fyrir. Á þessu tímabili virtust Arsenal aðeins sterkari en leikmenn Tottenham voru ekkert á því að láta þá valta yfir sig. Lennon átti gott hlaup inn í teiginn en náði ekki að skora og O´Hara átti skot úr aukaspyrnu rétt framhjá stönginni eftir að brotið var á Berbatov rétt fyrir utan teiginn. Á 32.mínútu fóru leikmenn Tottenham illa að ráði sínu þar sem þeir fengu upplagt tækifæri til að komast yfir. Jenas gaf boltann á Berbatov sem gaf á Keane. Keane náði hins vegar ekki í boltann en hann féll þó til Malbranque sem skaut framhjá þrátt fyrir að vera einn fyrir framan autt markið. Stuttu síðar fékk Malbranque annað upplagt tækifæri þegar Keane gaf fyrir markið og Steed skallaði boltann en boltinn fór framhjá. Berbatov átti svo þrumuskot að markinu en Fabianski varði vel í marki Arsenal. Á 37.mínútu kom svo markið sem lá í loftinu. King gaf sendingu á Berbatov sem gaf hann strax á Keane. Hann hljóp svo með boltann í áttina að markinu og gaf fyrir markið þar sem Jenas gerði allt rétt og skoraði framhjá Fabianski. Staðan orðin 1-0 og forystan verðskulduð. Jenas átti svo annað tækifæri tveimur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks en Fabianski náði að verja í þetta skiptið. Staðan í hálfleik því 1-0 þrátt fyrir að mörkin hefðu getað verið mun fleiri hjá Tottenham.
Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, þe. með sókn Tottenham. Bæði Malbranque og Keane áttu góð færi en inn vildi boltinn ekki. Arsenal átti sín færi líka og bauð leikurinn upp á ágætisskemmtun í síðari hálfleik. Þegar var farið að líða á leikinn fékk Diaby gott færi fyrir Arsenal en Dawson varðist vel og ekki leiddi það til árangurs fyrir Diaby. Þegar 13 mínútur voru til leiksloka gerði Ramos sína fyrstu skiptinu, svona í seinna lagi miðað við fyrri leiki. Malbranque fór af velli en inná kom Boateng. Tveimur mínútum síðar jafnaði Arsenal þó, þvert gegn gangi leiksins. Eduardo gaf á Walcott sem hljóp í áttina að markinu en Lee reyndi að tækla boltann af honum. Það heppnaðist þó ekki betur en svo að hann sparkaði boltanum í brjóstkassann á Walcott og þaðan fór boltinn framhjá Cerny í markinu. Sumir vildu meina að boltinn hefði farið í höndina á Walcott en ekki brjóstkassann en dómarinn dæmdi markið gilt. Þegar 6 mínútur voru til leikslok Setti Ramos Defoe inná í stað Keane og átti hann að gera útum leikinn eftir gott spil milli Lennon og Berbatov. Berbatov gaf út á kantinn á Lennon sem gaf fyrir markið á Defoe en honum tókst ekki að skora. Mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og stefnir því í algjöran úrslitaleik eftir tvær vikur þegar liðin mætast á White Hart Lane, en leikmenn Spurs geta sjálfum sér um kennt um þá stöðu enda mörg góð færi sem fóru forgörðum í leiknum.
Lið Spurs: Cerny, Chimbonda, Dawson, King, Lee, Lennon, Jenas, O´Hara, Malbranque(Boateng), Keane(Defoe), Berbatov. Ónotaðir varamenn:Robinson, Taarabt, Stalteri.






