Jafnt í nágrannaslagnum

0
894

Þegar flautað var til leiks í grannaslagnum gegn Chelsea hafði Tottenham ekki tapað í síðustu 7 leikjum, og ekki tapað leik á heimavelli í PL síðan í ágúst. Chelsea hafði hinsvegar ekki náð sigri í síðustu 4 leikjunum í PL. Stuðningsmenn Tottenham voru því líklega nokkuð vongóðir um hagstæð úrslit þegar kom að þessum leik. Harry Redknapp gerði 4 breytingar frá síðasta leik gegn Twente. Corluka, Gallas, Jenas og Kranjcar viku fyrir Dawson sem spilaði sinn fyrsta leik í byrjunarliði frá því að hann meiddist í haust, Hutton, Lennon og Modric komu einnig inn í byrjunarliðið.
Það voru Chelsea sem byrjuðu leikinn betur í kuldanum á White Hart Lane í Lundúnum. Það kom því svolítið gegn gangi leiksins þegar Roman Pavlyuchenko skoraði eftir aðeins stundarfjórðung. Það sem eftir lifði fyrri hálfleik var leikurinn í járnum og hvorugt liðið náði yfirhöndinni á vellinum. Bæði lið áttu sínar sóknir en bæði lið nýttu færin illa. Angelotti gerði eina breytingu í hálfleik þegar Drogba kom inná. Drogba átti heldur betur eftir að koma við sögu í leiknum. Drogba skoraði mark á 70 mínútu og segja má að markið skrifist frekar á slaka tilburði Gomes í markinu frekar en snilli Drogba. Í uppbótartíma fékk svo Chelsea vítaspyrnu og Drogba sem var nú hetja Chelsea stillti upp boltanum á vítapunktinn á meðan Gomes sem var þá „skúrkurinn“ í Tottenhamliðinu beið á línunni. Gomes bætti upp fyrir mistök sín og varði vítaspyrnuna og var því orðin hetja aftur á meðan Drogba sat eftir með sárt ennið. Lokatölur leiksins 1-1 og áttundi leikurinn í röð án taps hjá Spurs en 5. leikurinn án sigurs fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni.