Jafntefli í skemmtilegum leik

0
629

Þrír nýir leikmenn voru kynntir til sögunnar hjá Tottenham í leiknum á laugardag gegn Liverpool. Þetta voru þeir Jermaine Jenas, Grzegorz Rasiak og Lee Young-Pyo. Allir voru þeir keyptir nú í lok ágúst áður en leikmanna-skiptaglugganum var lokað. Einnig spilaði King sinn fyrsta leik og Lennon var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu. Leikurinn var skemmtilegur og byrjuðu Púlarar betur en við náðum svo yfirhöndinni. Bæði lið áttu stangarskot og bæði lið komu tuðrunni í netið en það var allt dæmt af. Okkar mörk vegna rangstöðu Defoe og svo hafði hornspyrna Carrick farið afturfyrir að mati línuvarðar en Crouch var dæmdur brotlegur í sínu marki. Niðrstaðan því jafntefli sem Spurs getur sætt sig við þó þeir hefðu getað tekið öll þrjú stigin.
Nýliðarnir stóðu sig allir vel og þó Lee sýnu best. Rasiak gerði markið sem var dæmt af og hann átti skalla sem lenti ofan á þverslánni. 
Spurs (4-4-2): Robinson, Stalteri, Lee, Gardner, King, Lennon (Brown, 81), Carrick, Jenas, Davids, Rasiak (Keane, 81), Defoe. Varam: Cerny, Naybet, Reid.