Jafntefli við Chelsea

0
840

Tottenham lék við Chelsea á White Hart Lane á fimmtudagskvöldið var og endaði leikurinn með jafntefli 1-1 eftir að Adebayor hafði komið Tottenham yfir. Leikurinn sem slíkur var ekkert sérstakur og líklega sanngjörn úrslit. Þó var smá vafaatriði með mark Chelsea í leiknum og vildu margir meina að dómarinn hefði átt að dæma hendi á Cole þegar hann lagði upp jöfnunarmark Chelsea í leiknum.

Bæði lið fengu færi í leiknum og munaði síðan ekki miklu að Tottenham næði að hirða öll stigin í uppbótartíma þegar Terry bjargaði á línu frá Adebayor , ótrúleg björgun þar á ferð með bakinu !!! 

Tottenham byrjaði leikinn af miklum krafti og stjórnaði algerlega leiknum fyrstu 25 mínúturnar eða svo.  Fyrsta markið kom strax á 8. mínútu þegar Bale brunaði upp vinstri kantinn og átti frábæra sendingu fyrir sem Adebayor náði að stinga tánni í og skora og staðan 1-0.  Áfram hélt Tottenham að sækja og Bale var í essinu sínu og ávalt hættulegur.    Það var svo á 23. mínútu sem Chelsea jafnaði,   boltinn barst út á vinstri kant til Ashley Cole ,  VdV renndi sér í boltann og ætlaði að sparka útaf en boltinn fór í höndina á Cole og beint inn í hlaupalínuna hans,  hann hljóp nokkra metra áfram og sendi síðan flotta sendingu yfir á fjær þar sem Sturrigde var einn og óvaldaður og skoraði næsta auðveldlega.  Eftir jöfnunarmark Chelsea virtist Tottenhamliðið fatast flugið,  Chelsea vann sig æ meir inn í leikinn og voru farnir að taka völdin á vellinum.  Drogba átti skot í slá og Friedel þurfti að verja.

Í seinni hálfleik hélt Chelsea áfram að stjórna leiknum og fengu nokkur færi ,  en svo kom annar dramatískur dómur þegar mark var dæmt af Adebayor vegna rangstöðu , en endursýningar sýndu að hann var réttstæður !!  

Þegar það voru komnar 86 mínútur á leikklukkuna fékk Chelsea eðalfæri til að komast yfir þegar Ramires fékk frábært færi á markteig, algerlega óvaldaður en skallaði framhjá.  

tottenham_-_chelsea_bjrgun.jpgEn þetta var ekki búið,  og þegar 2. mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma komst Adebayor í gott færi,  setti boltann framhjá Cech sem kom út á móti en Terry bjargaði á ótrúlegan hátt á marklínu , renndi sér þegar Adebayor skaut og fékk boltann í bakið og bjargaði marki.

Lokatölur 1-1 og líklega sanngjörn úrslit en kannski átti Tottenham skilið sigurinn þarna í lokin eftir 1 / 2 dómaramistök í leiknum sem voru ansi dýrkeypt mistök.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel – Walker – Gallas – King – Ekotto – VdV ( Pavlyuchenko 46 ) –  Modric – Sandro – Parker – Bale – Adebayor

Ónotaðir varamenn : Cudicini – Kaboul – Bassong – Kranjcar – Rose – Livermore

Tölfræði úr leiknum

Með boltann

Tottenham    56%      Chelsea  44%

Skot á mark

Tottenham 10      Chelsea     10

Skot framhjá

Tottenham   6     Chelsea   10

Hornspyrnur

Tottenham  7      Chelsea    4

.

.