Keane, Giovani og O´Hara lánaðir

0
623

Robbie Keane, Giovani dos Santos og Jamie O´Hara hafa allir verið sendir á láni út tímabilið þar sem þeim gefst kostur á að spila meira en þeir hafa fengið hjá Tottenham. Keane var lánaður til West Ham og talið er að samningurinn feli það í sér að nái þeir að halda sér í deildinni muni þeir kaupa hann í vor. Giovani var lánaður til Racing Santander og O´Hara var lánaður til Wolves.