Tottenham hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi um sölu á Robbie Keane til Liverpool. Töluvert annar tónn var í tilkynningu félagsins á heimasíðu þess en við aðrar sölur í þessum glugga. Levy sagði við tilkynninguna að hann hefði orðið mjög svekktur með bæði Liverpool og Keane í þessu máli. Liverpool fór á bakvið félagið þegar það reyndi að fá Keane til liðs við sig og vilji Keane til að yfirgefa félagið svona létt olli Levy vonbrigðum. Hélt hann áfram og sagði að hann liti ekki á þetta sem samning milli félaganna um söluna á Keane heldur að þetta væri þvinguð sala, en komust liðin þó að samkomulagi um "bætur" upp á 19 milljónir punda og gætur hækkað um 1,3milljónir punda í framtíðinni.
Liverpool hefur einnig viðurkennt að ummæli framkvæmdastjóra liðsins á heimasíðu félagsins sem fóru eins og eldur um sinu í fjölmiðlum hafi verið óviðeigandi og hafa beðist afsökunar á því framferði. Einnig hafa þeir samþykkt að gefa framlag til þess góðgerðarfélags sem Tottenham styrkir helst. Á móti hefur Tottenham samþykkt að halda ekki áfram með kvörtun sína til úrvalsdeildarinnar.
Keane gekk til liðs við Tottenham árið 2002 og spilaði 253 leikir fyrir félagið og skoraði í þeim 107 mörk.






