Keane verður tæpur fyrir helgina

0
564

Eins og flestir tóku án efa eftir spilaði Robbie Keane ekki með Spurs í síðari hálfleik í leiknum gegn Bolton í fyrradag. Hann sagði sjálfur í viðtali eftir leikinn að meiðslin væru ekki slæm en hann ætti eftir að fara í skoðun sem myndi gefa frekari niðurstöður.

Martin Jol sagði um Keane: „Fólk hélt kannski að ég hefði tekið hann útaf, en sannleikurinn var að hann var meiddur á ökla og ég varð að taka hann útaf.”

Annars hefur Jol greint frá því að Danny Murphy sé ekki meiddur en ástæðan fyrir brotthvarfi hans á lokamínútunum var krampi. Það ætti ekki að koma að sök fyrir næsta leik en Edgar Davids mun geta verið með eftir að hafa tekið út leikbann.

Enn eru Ledley King, Mido og Jermaine Jenas frá vegna meiðsla og verður að teljast ólíklegt að þeir verði með gegn West Ham.