Klúbbferð á Spurs – L´pool

0
843

Þá er komið að síðustu hópferð klúbbsins á þessu tímabili.  En farið verður á lokaleik Tottenham á tímabilinu ,  leik Tottenham og Liverpool.  Leikið verður á sunnudeginum 11. maí kl. 15.00 að staðartíma.  Síðasti heimaleikur Tottenham er ávallt sérstakur þar sem eftir leik verða krýndir besti leikmaður og efnilegasti leikmaður ársins hjá Tottenham.  Ávallt mjög skemmtilegt andrúmsloft á WHL á síðasta leik tímabils.

Flogið verður út föstudagin 9.maí frá Leifsstöð kl.7:15. Lent verður í London um þremur tímum síðar og rúta flytur hópinn á Holiday Inn hótelið í Bloomsbury sem er 3+ stjörnu hótel við lestarstöðina Russel Square. Laugardaginn er svo hægt að nýta eins og fólk vill og svo á sunnudeginum verður farið á WHL að sjá leikinn gegn Liverpool. Flogið heim kl.12:30 á mánudeginum 12. maí,  en rúta sækir hópinn á hótelið og keyrir honum út á flugvöll.

Verð á hvern einstakling sem er meðlimur í Tottenham klúbbnum er kr. 64.900 og innifalið í því er flug, gisting í þrjár nætur, morgunmatur, rúta til og frá flugvelli og miði á Liverpool leikinn ( sæti í austur stúku, efri palli sem er stúka við aðra hliðarlínuna). Verð fyrir þá sem ekki eru meðlimir í klúbbnum er 66.900 kr.
Aukanótt á Holiday Inn hótelinu í Bloomsbury kostar 8.300 miðað við tvíbýli
Breytingargjald er kr. 18.000 fyrir einstaklingsherbergi.

Einungis eru 30 sæti í boði og því um að gera að bóka sem fyrst því að fyrstur kemur, fyrstur fær.
Til að bóka sæti þarf að hafa samband við Ágúst Valsson hjá Express ferðum í síma 590 0100 / 550 0600 eða í pósti á netfangið agust@icelandexpress.is. Í póstinum þurfa að koma fram helstu upplýsingar, s.s. nafn, kennitala og símanúmer. Ef greiða á með kreditkorti er æskilegra að bóka gegnum síma.

DEILA
Fyrri fréttGleðilega páska!!!
Næsta fréttATHUGIÐ!!!