Klúbburinn tilkynnir brottför á Arsenal leikinn

0
527

Tottenhamklúbburinn í samvinnu við Express Ferðir efna til hópferðar á leik Tottenham og Arsenal á White Hart Lane sem leikinn verður 21. apríl nk. Flogið verður með Iceland Express til London þann 19. apríl og komið heim aftur á sunnudagskvöld 22. apríl. Verðið er 59.900,- fyrir manninn miðað við að tveir séu saman í herbergi. Innifalið er flug og skattar, gisting með morgunmat á Royal National sem er þriggja stjörnu hótel við Russel Square. Rúta af flugvelli á hótel og aftur á flugvöll. Miði á völlinn. Ætlunin er að draga út þrjá heppna í ferðinni sem fá að fara með fyrir leik að afhenda leikmanni síðasta tímabils viðurkenningu. Einnig er fyrirhugað að hópurinn fari saman út að borða á fimmtudag eða föstudagskvöldinu en það er utan við verðið á ferðinni. Nánar um það síðar. Til að kaupa sæti í ferðina eða fá frekari upplýsingar smellið þá hér  http://www.expressferdir.is/markmenn.php?idcat=2&idteam=19 til að komast á síðu Express Ferða.

Einnig veitir Haraldur upplýsingar í síma 698-2109