Það kom loksins að því að Tottenham bar sigurorð af Bolton eftir tap í síðustu sex viðureignum liðanna. Leikurinn var síðasti heimaleikur Tottenham á tímabilinu og lauk með 1-0 sigri og var það Aron Lennon sem skoraði sigurmarkið.
Martin Jol vissi að leikurinn í dag yrði einn sá erfiðasti á tímabilinu. Tottenham þurfti sigur í þessum leik sem og síðasta leik tímabilsins gegn West Ham næstkomandi sunnudag til að halda í vonina um meistaradeildarspil á næstu leiktíð. Martin neyddist til að gera breytingu á liði sínu þar sem að Edgar Davids var í banni vegna brottvísunar í síðasta leik. Danny Murphy tók sæti hans í byrjunarliðinu og Andy Reid fékk loksins sæti á varamannabekknum. Enn voru fjarverandi vegna meiðsla King, Jenas og Mido.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkar menn. Bolton menn mættu af ákveðni og hörku í þennan leik þar sem þeir þurftu öll þrjú stigin í baráttunni um evrópusæti á næstu leiktíð. Tottenham liðið virtist hins vegar hálfóöruggir til að byrja með og eflaust vel stressaðir endar mikið í húfi fyrir þá. En Bolton liðið var lið fyrri hálfleiks, þeir héldu boltanum vel og áttu nokkrar stórsóknir þ.á.m. stangarskot og dauðafæri sem Dawson rétt náði að bjarga. Boltinn fór nánast ekki inn á vallarhelminn Bolton, svo vel spiluðu þeir en að sama skapi má hrósa vörn Tottenham fyrir að standast slíka stórsókn. Í hálfleik var staðan því 0-0. Í upphafi seinni hálfleiks var Barnard skipt inn á fyrir Robbie Keane sem meiddist á ökkla og gat ekki leikið meira. Liðsmenn spurs virtust hafa fengið nægar skammir frá Jol í hálfleik því það var allt annað að sjá liðið í seinni hálfleik miðað við þann fyrri, þó svo að liðið hafi oft spilað betur en í dag. Barnard sýndi mikla baráttu frammi og miðjunni fór mikið fram. Lennon var stórhættulegur líkt og vanalega með hraða sínum og hann átti eftir að hafa mikil áhrif á þennnan leik. Á 59.mínútu fékk Lennon sendingu frá Carrick og kom boltanum framhjá Jaaskelainen í markinu og var þetta hans annað mark á tímabilinu. Bolton menn neituðu þó að gefast upp og sóttu að marki spurs en Robbo, Gardner og Dawson stóðu fyrir sínu í miðri vörninni. Bolton menn vildu svo fá víti þar sem þeir töldu að Dawson hefði brotið að Giannakopoulios en dómarinn dæmdi ekkert. Andy Reid var síðan skipt inná í stað Defoe til að þétta miðjuna enda var Barnard alveg að skila sínu í framlínunni. Reid er orðinn allt annar maður núna, virðist í betra formi nú en þegar hann kom fyrst til tottenham. Murphy þurfti síðan að fara af velli undir lok leiksins þar sem hann fékk krampa í löppina og engin áhætta var tekin vegna mikilla meiðsla hjá Tottenham. Davernport kom inná í hans stað og leikmenn Spurs vörðust vel og héldu forustunni til loka leiksins. Tottenham er því enn í fjórða sætinu og þurfa einungis að vinna sinn síðasta leikinn gegn West Ham næsta sunnudag til að tryggja fjórða sætið. Arsenal eiga þó að spila tvo leiki fram að því og tapi þeir stigum í þeim leikjum, þá gæti hugsast að úrslitin verði ráðin fyrir sunnudaginn. En maður leiksins í dag var enginn annar en litli snöggi markaskorarinn okkar, Aron Lennon, og átti hann það vel skilið.
Lið Tottenham: Robinson, Stalteri, Lee, Dawson, Gardner, Murphy (Davenport), Tainio, Carrick, Lennon, Defoe (Reid) , Keane ( Barnard). Ónotaðir varamenn: Cerny, Huddlestone






