Loksins sigur!

0
611

Eftir fjögur jafntefli í röð kom loks að sigri Tottenham. Liðið heimsótti Reading og fór með sigur af hólmi 1-0 en þetta var einungis þriðji útisigur liðsins í deildinni á öllu tímabilinu. Mark Tottenham skoraði Robbie Keane. Með þessum sigri tryggði liðið sér 11.sætið í deildinni en á þó möguleika á að komast yfir West Ham og ná 10.sætinu í síðustu umferðinni nk.sunnudag.

Ramos stillti upp nokkuð breyttu liði frá síðasta leik. Cerny hélt þó sæti sínu í liðinu og var þetta hugsanlega einn af síðustu leikjum hans enda bæði hann og Robinson orðaðir frá félaginu í sumar. Varnarlínan var skipuð þeim Hutton, Dawson, Woodgate og Gilberto og á miðjunni léku þeir Jenas, Huddlestone, Zokora og Malbranque. Frammi spiluðu þeir Keane og Bent en Berbatov var fjarri góðu gamni sökum nárameiðsla. Á bekknum sátu þeir Robinson, Chimbonda, O´Hara, Boateng og Taarabt.

     Leikmenn Tottenham byrjuðu mun betur og kom nokkuð á óvart hversu illa upplagðir leikmenn Reading voru í jafn þýðingarmikinn leik eins og þessi var fyrir þá enda berjast þeir á fullu við falldrauginn. Fljótlega í byrjun gaf Huddlestone góða sendingu út á kantinn á Malbranque sem gaf boltann fyrir markið á Bent en hann rétt missti af því að geta skallað hann. Stuttu síðar var Bent enn á ný að gera sig hættulegan við mark Reading manna. Bent tók á sprett eftir sendingu frá Malbranque og skaut góðu skoti að marki en Hahnemann rétt náði að verja boltann. Malbranque átti svo sæmilega tilraun að marki en á 16.mínútu kom Keane boltanum yfir marklínu Reading manna. Bent kom enn og aftur við sögu því eftir gott hlaup hjá honum gaf hann boltann á Keane sem skoraði framhjá Hahnemann í markinu og staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham. Nokkrum mínútum eftir markið skoraði Malbranque annað mark sem var ranglega dæmt af. Keane gaf boltann á Malbranque en línuvörðurinn dæmdi rangstöðu og markið því ekki gilt en sjónvarpsupptökur sýndu að Malbranque var greinilega réttstæður þegar sendingin kom.  Tottenham átti svo að auka forskot sitt rétt fyrir hálfleikshlé þegar Keane fékk góða sendingu frá Malbranque en inn vildi boltinn ekki. Staðan í hálfleik var því 0-1 fyrir Tottenham.

     Á fyrstu mínútum seinni hálfleiks munaði litlu að Tottenham næði að auka forskot sitt en í staðinn voru Reading menn ennþá inni í leiknum. Hutton gaf boltann á Keane sem renndi boltanum fyrir markið á Malbranque en skot hans endaði í hliðarnetinu. Bent var ansi fjörugur í þessum leik og átti hættulegt færi þegar hann fékk boltann eftir samspil Jenas og Keane, en Shorey náði að komast í veg fyrir skotið. Þegar leið á leikinn fóru leikmenn Reading að taka við sér og Lita átti skot að marki Tottenham sem Cerny varði og Zokora komst svo í veg fyrir skot frá Bikey. Þegar klukkustund var liðin af leiknum gerði Ramos sína fyrstu skiptingu og kom O´Hara inná í staðinn fyrir Huddlestone. O´Hara átti mjög góða fyrirgjöf fljótlega eftir að hann kom inná en Bent náði ekki að skalla boltann nógu vel. Matejovsky átti skot að marki Tottenham sem fór naumlega framhjá og uppfrá þessu færi fóru leikmenn Reading að spýta í lófana. Bent átti þó fyrst gott skot sem hafnaði í stönginni og sluppu Reading menn þar með skrekkinn. Þegar korter var eftir af leiknum kom Boateng inná í stað Keane. Cerny varð þó að taka á honum stóra sínum á síðustu mínútunum. Kitson og Rosenior áttu báðir mjög hættuleg skot sem Cerny varði meistaralega ásamt nokkrum hálffærum Reading manna. En þeim tókst ekki að koma boltanum framhjá Cerny og hirti Tottenham því öll stigin og var þetta einungis þriðji útisigur liðsins á tímabilinu í deildinni. Reading er hins vegar komið í bullandi fallbaráttu og þarf að treysta á hagstæð úrslit sem og að vinna sinn leik til að halda sér í úrvalsdeildinni.

Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson, Woodgate, Gilberto, Jenas, Huddlestone (O´Hara), Zokora, Malbranque, Keane( Boateng), Bent. Ónotaðir varamenn: Robinson, Chimbonda, Taarabt