Markalaust jafntefli á White Hart Lane

0
720

Tottenham og Manchester United gerðu markalaust jafntefli þegar síðarnefnda liðið kom í heimsókn á White Hart Lane í 17. umferð úrvalsdeildarinnar. Bæði lið fengu góð tækifæri til að skora í leiknum en markverðir beggja liða stóðu fyrir sínu á milli stanganna og deildu liðin því með sér stigunum. Tottenham er því komið með 19 stig í deildinni og er í 15. sæti deildarinnar.

Harry gerði eina breytingu á liðinu frá sigurleiknum gegn Wigan, en Ledley King stóðst ekki þolpróf fyrir leikinn og Dawson tók því sæti hans í miðri vörninni. Liðið var því skipað þannig að Gomes var í markinu og vörnina skipuðu þeir Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Modric, Zokora og Lennon og Pavlyuchenko byrjaði því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Bale, Gunter, Boateng, Huddlestone, O´Hara og Bent.

 

Bentley fékk fyrsta almennilega færi leiksins þegar hann náði boltanum af Ferdinand vinstra megin á vellinum og skaut á markið af löngu færi en Van Der Sar náði að verja með fingurgómunum. Tottenham varð svo fyrir miklu áfalli á 11. mínútu leiksins þegar Woodgate þurfti að fara af velli eftir að hafa kennt sér mein í bakinu. Ekki er enn vitað hversu alvarleg meiðslin eru en hann verður þó frá í einhvern tíma. Inná í hans stað kom Huddlestone og færði Corluka sig þá í miðvörðinn, Zokora fór í hægri bakvörðinn og Huddlestone á miðjuna. Þegar 23 mínútur voru liðnar af leiknum fékk Lennon upplagt færi. Huddlestone gaf góða sendingu á Lennon sem fór framhjá Fletcher og skaut að marki en Van Der Sar náði að verja skotið og einnig skot Pavlyuchenko sem náð hafði frákastinu. Tevez fékk sæmilegt færi þegar rúmlega hálftími var liðinn af leiknum en skot hans fór framhjá markinu. Þegar 6 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks fékk Modric eitt besta færi leiksins þegar hann skallaði fyrirgjöf Zokora að markinu en boltinn fór rétt framhjá. Huddlestone átti svo þrumuskot að marki United þegar þrjár míntur voru eftir af leiktíma fyrri hálfleiks en því miður varð Pavlyuchenko fyrir skotinu og boltinn rataði því ekki á rammann. Hættulegasta færi United manna kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Ferdinand skallaði að marki en Gomes varði vel. Ekkert mark var því skorað í fyrri hálfleik og staðan því jöfn 0-0.

 

Leikmenn United komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik enda höfðu leikmenn Tottenham haft nokkra yfirhönd í leiknum í fyrri hálfleik. Á 54. mínútu leiksins skoraði Ronaldo mark eftir hornspyrnu en markið var réttilega dæmt af sökum þess að Ronaldo handlék boltann áður en hann skaut að markinu. Harry kaus þá að gera aðra skiptingu, Pavlyuchenko fór af velli og Bent kom inná í hans stað. Park fékk svo ágætisfæri en Gomes var vel vakandi í markinu. Jenas þurfti svo að fara af velli á 62.mínútu sökum meiðsla í kálfa og O´Hara kom inná í hans stað. Van Der Sar fékk að reyna á sig á 63. mínútu þegar Bentley tók aukaspyrnu fyrir utan teiginn og skaut að markinu. Sex mínútum síðar gerði Ferguson tvöfalda breytingu á sínu liði þegar Scholes og Giggs komu inná. Á 72. mínútu fékk Vidic tækifæri til að skora með skalla en Gomes varði vel. Stuttu síðar fékk Ferdinand einnig skallafæri en boltinn fór rétt yfir markið. Carrick átti skot að marki eftir hornspyrnu þegar rúmlega 10 mínútur voru eftir af leiknum en Gomes stóð enn á ný sem klettur milli stanganna. Modric átti svo gott skot að marki United manna þegar 6 mínútur voru til leiksloka en boltinn lenti í Ferdinand á leið sinni að markinu og fór rétt yfir markið. Gomes átti svo tvær stórkostlegar markvörslur á lokamínútum leiksins. Fyrst varði hann þrumuskot frá Park og svo á síðustu mínútu leiksins varði hann aukaspyrnu frá Giggs sem virtist vera á leið í topp horn marksins. Leiknum lauk því með markalausu jafntefli og hefur Tottenham því enn ekki tapað á þessari leiktíð fyrir þeim liðum sem síðustu árin hafa einokað efstu fjögur sæti deildarinnar.

 

Lið Tottenham: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate(Huddlestone), Ekotto, Bentley, Jenas(O´Hara), Zokora, Lennon, Modric, Pavlyuchenko(Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Gunter, Boateng.