Markalaust jafntefli gegn Manchester United

0
621

Tottenham tók á móti Manchester United á White Hart Lane en síðarnefnda liðið var taplaust fyrir leikinn og  voru leikmenn Tottenham staðráðnir í að breyta því. Bæði lið fengu fín færi í leiknum til að hirða öll þrjú stigin. Síðasta korterið gerðu leikmenn Tottenhamm allt til að skora eftir að United menn urðu manni færri, en Rafael fékk reisupassann í leiknum eftir að hafa fengið 2 gul spjöld. En allt kom fyrir ekki og hvorugu liðinu tóks að skora og skildu þau því jöfn 0-0 og deildu bróðurlega með sér stigunum.

 

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Dawson, Ekotto, Lennon, Palacios (Defoe 78), Modric, Bale, Van der Vaart, Crouch.

Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bassong, Corluka, Jenas, Kranjcar, Pavlyuchenko.