Tottenham tók á móti Fiorentina laugardaginn 7. ágúst á White Hart Lane í síðasta æfingleiknum á undirbúningstímabilinu en deildin hefst laugardaginn 14. ágúst. Tottenham fór í leikinn með sterkt lið en Harry gerði einnig nokkrar skiptingar í leiknum til að leyfa sem flestum að spila. Fiorentina komst yfir í upphafi leiks með marki frá Gillardino en Tottenham jafnaði um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Pavyluchenko. Ljajic kom Fiorentina aftur yfir 10 mínútum síðar og þannig stóð í háflleik. Keane jafnaði leikinn fljótlega í byrjun síðari hálfleiks og skoraði einnig sigurmarkið undir lok leiks og fór Tottenham því með sigur af hólmi 3-2.






