Markaveisla í Lundúnarslag

0
585

Sannkölluð markaveisla var í boði þegar Chelsea mætti í heimsókn á White Hart Lane. Leikurinn var frestaður leikur frá því í febrúar en liðin áttu að leika þennan deildarleik daginn fyrir Carling Cup úrslitaleikinn. Búast mátti við Chelsea mönnum ákveðnum til leiks enda staðráðnir í að hefna fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum ásamt því að vera í bullandi toppbaráttu en leikmenn Tottenham voru ekki á því að láta valta yfir sig og lauk leiknum með 4-4 jafntefli. Mörk Tottenham skoruðu þeir Woodgate, Berbatov, Huddlestone og Keane.

     Ramos stillti upp sama liði og byrjaði úrslitaleikinn á Wembley í síðasta mánuði. Robinson stóð á milli stanganna og varnarlínan var skipuð þeim Hutton, Woodgate, King og Chimbonda. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi byrjuðu sem fyrr þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu Cerny, Dawson, Tainio, Huddlestone og Bent.

     Leikurinn byrjaði á fjörugu nótunum og ekki leið á löngu þar til fyrsta mark dagsins varð að veruleika. Chelsea fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Tottenham og Drogba tók spyrnuna. Boltinn fór í varnarveginn en barst svo til Terry sem var staðsettur vinstra megin í vítateignum og hann var ekki lengi að koma boltanum fyrir markið á fjarstöngina þar sem Drogba skallaði boltann framhjá Robinson. Staðan orðin 0-1 fyrir Chelsea og einungis þrjár mínútur búnar af leiknum. Stuttu síðar fór boltinn á ný í mark Tottenham eftir að Robinson varði skot frá Drogba fyrir fætur Cole sem kom honum í netið. Markið var hins vegar dæmt af þar sem Cole var rangstæður þegar Drogba skaut að marki og hagnaðist því af stöðu sinni þegar boltinn barst til hans. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane á 11.mínútu þegar Tottenham náði að jafna leikinn. Jenas tók aukaspyrnu og gaf boltann inn í teiginn þar sem Woodgate skallaði boltann framhjá Cudicini í markinu. Annað mark Woodgate fyrir Tottenham og bæði hafa þau komið með skalla gegn Chelsea, það fyrra í bikarúrslitaleiknum. Staðan því orðin 1-1 og leikurinn galopinn á ný. Leikmenn Chelsea sóttu stíft að marki Spurs og áttu ágætisfæri þegar Cole gaf fyrir markið en boltinn fór framhjá öllum leikmönnum á leiðinni, bæði Tottenham og Chelsea leikmönnum. Á 19.mínútu komst Chelsea þó yfir á ný. Cole tók sprett upp völlinn og gaf inn fyrir vörn Tottenham á Drogba og Essien og sá síðarinn náði boltanum og kom honum framhjá Robinson. Leikmenn Tottenham voru allt annað en sáttir með þetta mark og sést í endursýningu að Drogba var hugsanlega rangstæður þegar sendingin kom og þar sem hann var við hlið Essien er ekki hægt að telja að hann hafi ekki haft áhrif á leikinn. En markið stóð og Chelsea komið yfir 1-2. Leikmenn Tottenham reyndu að jafna leikinn sem fyrst og átti Jenas góðan sprett að marki sem Cudicini varði og Lennon komst í upplagt færi þar sem hann tók sprett í átt að marki en Cudicini átti gott úthlaup út úr teignum og sparkaði boltanum útaf vellinum. Stuttu fyrir hálfleik gerðist umdeilt atvik þegar Asley Cole braut á Hutton á miðjum vellinum ekki langt frá varamannabekkjunum. Cole fór í tæklinguna með takkana á undan, átti ekki möguleika á að ná boltanum og fór beint í sköflunginn á Hutton. Riley flautaði og varð samstundis umvafin Chelsea leikmönnum sem deildu ansi mikið við hann. Riley skipaði þeim að fara í burtu og kallaði á Cole til sín sem sýndi Riley mikla óvirðingu með því að standa bara og snúa baki í hann. Á endanum tók Riley þó upp bókina sína og gaf honum gult spjald en margir voru á þeirri skoðun að sá dómur væri kolrangur og að hann verðskuldaði að vera rekinn af velli, ekki bara fyrir brotið heldur einnig fyrir framkomu sína gagnvart Riley. Fljótlega flautaði svo Riley til loka fyrri hálfleiks og staðan því 1-2 í hálfleik.

     Ramos gerði strax sína fyrstu skiptingu í hálfleik þegar hann tók Jenas af velli og inná í hans stað kom Huddlestone. En eftir sex mínútna leik bætti Chelsea við forskot sitt. Joe Cole tók sprett upp hægri kantinn, lék á Chimbonda og skaut að marki og lenti boltinn í fótum Robinson og fór þaðan í netið. Staðan orðin 1-3 og róðurinn því orðinn ansi erfiður fyrir leikmenn Tottenham. En þeir gáfust ekki upp og þegar um klukkustund var liðin af leiknum minnkuðu þeir muninn. Huddlestone tók hornspyrnu og gaf fyrir markið þar sem Berbatov smellhitti boltann með hausnum og skallaði boltann í fjærhornið og Cudicini gat ekkert við því gert, annað en að hirða boltann úr netinu. Keane fékk svo sannkallað dauðafæri til að jafna leikinn eftir góða sendingu frá Berbatov en Cudicini varði vel. Drogba átti hættulegt færi hinum megin á vellinum en boltinn fór framhjá. Á 70.mínútu gerði Ramos aðra breytingu á liðinu. Ledley King fór af velli og Darren Bent kom inná í hans stað. Sjö mínútum síðar tóku stuðningsmenn Tottenham gleði sína á ný þegar Tom Huddlestone tókst að jafna leikinn. Keane tók hornspyrnu og gaf fyrir markið og boltinn féll á endanum fyrir fætur Huddlestone á fjærstönginni sem skaut góðu skot að markinu og inn fór boltinn. En þegar tíu mínútur voru til leiksloka leit allt út fyrir að Chelsea ætlaði að hirða öll stigin í þessum markaleik þegar Joe Cole skoraði annað mark sitt í leiknum og fjórða mark Chelsea. Enn á ný átti hann í baráttu við Chimbonda í teignum og náði að koma sér framhjá honum og skjóta að marki og Robinson átti ekki möguleika á að ná boltanum. En leikmenn Chelsea neyddust til að láta eitt stig duga eftir að Keane skoraði jöfnunarmark leiksins og fjórða mark Tottenham í leiknum. Boltinn barst til hans vinstra megin fyrir utan teiginn þar sem hann tók viðstöðulaust skot í fjærhornið og boltinn small í netinu. Chelsea mega þó þakka Cudicini fyrir að fara ekki algjörlega stigalausir heim þar sem Berbatov komst í upplagt færi á lokamínútum uppbótartíma. Berbatov var einn á móti Cudicini og skaut ágætis skoti að markinu en Cudicini varði meistaralega og leiknum lauk því 4-4.

Lið Spurs: Robinson, Hutton, Woodgate, King(Bent), Chimbonda, Lennon, Jenas(Huddlestone), Zokora, Malbranque, Keane, Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Dawson, Tainio.