Það hefur verið staðfest að Martin Jol hafi verið rekinn sem stjóri hjá Tottenham. Það gerði hann fyrir leikinn í gærkvöldi sem tapaðist 1-2. Ekkert hefur verið gefið út um hver tekur við en sögusagnir segja að Ramos hafi samþykkt að koma jafnvel í næstu viku og þá er talað um að Poyet muni verða aðstoðarmaður hans. Síðasti leikur sem Jol stjórnaði verður honum ekki til vegsauka hjá Spursurum þar sem þetta er aðeins í annað sinn frá upphafi þátttöku okkar í Evrópukeppnum að við töpum heimaleik. Eini annar leikurinn sem hefur tapast var gegn besta liði Evrópu þá Real Madrid.






