Mendes meiddur

0
876

Pedro Mendes meiddist í leik Spurs og Nottingham Forest í bikarnum í gær. Í fyrstu leit ekki út fyrir að meiðslin væru alvarleg en í dag hefur komið í ljós að hann er líklega tábrotinn og verður þ.a.l. frá keppni næstu vikurnar. Þetta eru svo sannarlega mikil vonbrigði fyrir Mendes en hann var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í gær síðan í janúar og lék mjög vel. En þó eru ekki aðeins slæmar fréttir sem berast frá White Hart Lane því að Sean Davis er að ná sér af meiðslum sem hafa hrjáð hann síðan í október. Hann verður þó líklega ekki með um helgina gegn Southampton. OÓJ

DEILA
Fyrri fréttSpurs-Everton 2-1
Næsta fréttSpurs-Watford 1-1