Jamie O´Hara skrifaði í dag undir nýjan og endurbættan samning við Tottenham sem heldur honum hjá félaginu til ársins 2013. En dagurinn í dag var annasamur hjá O´Hara því auk þess að skrifa undir nýja samninginn hefur hann einnig samþykkt að ganga til liðs við Portsmouth á lánssamningi fram í janúar, með þann möguleika til staðar að framlengja lánssamninginn út tímabilið.






