Tottenham og Arsenal deildu með sér stigunum í grannaslagnum í gærkveldi. Leiknum lauk með 4-4 jafntefli í ótrúlegum leik þar sem Tottenham jafnaði leikinn eftir að vera 2 mörkum undir þegar 2 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Mörk Tottenham skoruðu þeir Bentley, Bent, Jenas og Lennon en mark Bentley hlítur að teljast með mörkum umferðarinnar.
Leikurinn var fyrsti leikurinn þar sem Harry stillti sjálfur upp liðinu en Clive Allen sá um það í leiknum gegn Bolton. Tvær breytingar voru gerðar á liðinu frá síðasta leik, Woodgate kom inn fyrir King og Bale inn fyrir O´Hara. Liðið var því svo skipað. Gomes var í markinu og varnarlínan skipuð þeim Hutton, Corluka, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir Bentley, Jenas, Modric, Huddlestone og Bale og frammi var Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gunter, Zokora, O´Hara, Bent, Campbell og Lennon.
Leikurinn var fjörugur og spennandi frá fyrstu mínútu enda mikill rígur á milli liðanna og andrúmsloftið á vellinum magnað. Á upphafsmínútunum sendi Huddlestone boltann út á vinstri kantinn á Bale sem kom sér í skotfæri en skot hans fór í hliðarnetið. Á hinum enda vallarins fékk Walcott boltann frá Adebayor og skaut að marki en boltinn fór sömuleiðis framhjá hjá honum. En á 13.mínútu leiksins kom fyrsta markið og voru það leikmenn Tottenham sem komu boltanum í netið framhjá Almunia. Boltinn var rétt innan vallarhelmings Arsenal manna og Jenas tók boltann á bringuna og lagði fyrir Bentley sem tók við boltanum og þrumaði háum bolta í átt að marki Arsenal en Almunia var kominn dálítið út úr marki sínum. Boltinn flaug yfir völlinn og small í netinu, en Almunia rétt náði að koma við hann en tókst þó ekki að verjast skotinu. Staðan því orðin 0-1 fyrir Tottenham og gífurlegur fögnuður braust út hjá stuðningsmönnum Tottenham. Hins vegar þaggaði þetta niður í stuðningsmönnum Arsenal en Bentley hafði verið púaður mikið af þeim enda uppalinn hjá Arsenal. Stuttu síðar átti van Persie möguleika á að jafna leikinn en Gomes varði skot hans og einnig var hætta við mark Tottenham eftir misheppnað úthlaup hjá Gomes en Gallas hitti ekki í markið. Eftir jafnan leik framan af náðu leikmenn Arsenal að komast betur inn í leikinn og á 37. mínútu jöfnuðu þeir leikinn. Van Persie tók hornspyrnu og Silvestre var fyrstur til boltans og skallaði boltann í fjær hornið. Staðan orðin jöfn 1-1 og var sú sama þegar flautað var til hálfleiks enda ekki fleiri mörk skoruð.
Leikmenn Arsenal komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og enn á ný voru það föstu leikatriðin sem leikmenn Tottenham voru í vandræðum með. Van Persie tók aukaspyrnu og gaf inn í teiginn þar sem Gallas skallaði boltann í netið framhjá Gomes. Staðan því orðin 2-1 heimamönnum í vil. Leikmenn Arsenal héldu áfram að pressa og átti Gomes góða markvörslu eftir skot frá Denilson. Redknapp ákvað svo að gera breytingu á liðinu og gera þar með tilraun til að komast á ný inn í leikinn. Bale fór af velli og inná í hans stað kom Lennon. Adebayor og Bentley áttu tilraunir á mark á sitthvorum endanum sem markverðir liðanna vörðu með prýði. En á 64. mínútu bættu leikmenn Arsenal við þriðja markinu og þyngdist því róður gestanna. Nasri reyndi að vippa yfir Gomes eftir mistök í vörn Tottenham. Boltinn fór yfir Gomes en Hutton fylgdi á eftir og möguleikinn var fyrir hendi að hann næði að sparka honum í burtu. En þá kom Adebayor á spretti og náði til boltans á undan Hutton og kom þeim báðum inn í netið. Staðan því orðin 3-1 fyrir Arsenal. Redknapp gerði strax aðra breytingu á liðinu, Pavlyuchenko fór af velli og Bent inná í hans stað. Og það tók Bent ekki nema mínútu að skora mark eftir að hann var kominn inná. Huddlestone átti þrumuskot að marki sem Almunia varði en hann náði ekki að halda boltanum og Bent var fyrstur til boltans og skoraði örugglega. Nú voru rúmlega 20 mínútur eftir af leiknum og aðeins eitt mark skildi liðin að og því eygðu leikmenn Spurs von um að jafna leikinn. En útlitið varð svartara stuttu síðar þegar Hutton gerði óþarfa varnarmistök og leikmenn Arsenal nýttu sér það. Hutton var með boltann en gaf hann aftur en þar var enginn samherji, aðeins Adebayor sem þakkaði pent fyrir sig með því að gefa fyrir markið á van Persie og hann skaut framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 4-2 og allt stefndi í stórsigur Arsenal manna enda þeir líklegri til að bæta við heldur en Spurs að minnka muninn. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var Hutton tekinn af velli enda ekki hans besti dagur í Spurstreyjunni og Gunter kom inná í hans stað. Leikmenn Tottenham neituðu þó að gefast upp og þegar 1 mínúta var eftir af venjulegum leiktíma nýtti Jenas sér mistök í vörn Arsenal og skoraði framhjá Almunia. Clichy missti boltann á hættulegum stað og Jenas var á réttum stað, hirti boltann, hljóp upp að vítateignum og þrumaði boltanum efsti í fjærhornið vinstra megin. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma sökum skiptinga og annarra tafa. Fáum hefði þó órað fyrir jafn spennandi lokamínútum því á 94. mínútu tók Modric smá áhættu og þrumaði að marki af löngu færi. Boltinn small í stönginni en Lennon var réttur maður á réttum stað, náði frákastinu og skoraði örugglega framhjá Almunia. Staðan orðin jöfn 4-4 í æsispennandi leik og leikmenn Tottenham fögnuðu gríðarlega enda ekki á hverjum degi sem liðið á slíka endurkomu. Ekki urðu mörkin fleiri og lokastaðan því 4-4 og liðin fengu því sitthvort stigið úr þessum æsispennandi grannaslag.
Lið Spurs: Gomes, Hutton (Gunter), Corluka, Woodgate, Ekotto, Bentley, Jenas, Modric, Huddlestone, Bale (Lennon), Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Zokora, O´Hara og Campbell.






