Portsmouth-Tottenham 1-1

0
662

Þrátt fyrir að vera betra liðið tókst Tottenham ekki að vinna Portsmouth á útivelli. Leikurinn byrjaði reyndar ekki vel fyrir Tottenham því Ghaly fékk spark í andliðið frá fyrrum leikmanni Tottenham Pamarot og var utan vallar í aðgerð í einar sjö mínútur þar sem saumaður var skurður sem hann fékk. Í hálfleik tókst vallarstarfsmönnum að finna allar fjórar tennur hans sem höfðu brotnað við höggið.  hann kom þó inná aftur en var svo skipt út í hálfleik. Murphy tók þá stöðu hans. Jol gerði eina breytingu á byrjunarliðinu. Berbatov kom aftur inn og Mido sem lék meiddur gegn Liverpool var ekki í hópnum. Tottenham spilaði ágætlega í leiknum lengst af. Það var því gegn gangi leiksins að Portsmouth komst yfir með marki frá Benjani en skot hans fór af Davenport í markið (hvað oft höfum við ekki fengið svona mörk á okkur). Á 50. mínútu fékk Murphy tíma til að gefa fyrir á fjarstöngina þar sem Steed var óvaldaður. Steed skallaði í markið og jafnaði. Þegar leið á leikinn jókst sóknarþungi heimamanna og þeir skiptu m.a. sóknarmanni inná til að bæta í sóknarleikinn. Jol brást við með að taka Steed útaf og setja Gardner inn og það dugði til að landa einu stigi en Tottenham er aðeins fjórða liðið í vetur sem nær stigi á Fratton Park. Tottenham átti fín færi en James í marki Portsmouth sá við þeim tilburðum.
Liðið:  Robinson, Chimbonda, YP Lee, Dawson, Davenport, Ghaly (Murphy, 46), Tainio, Huddlestone, Malbranque (Gardner, 78), Berbatov, Defoe. Varamenn: Cerny, Zokora, Ziegler