Tottenham og Crystal Palace hafa náð samkomulagi um kaup Tottenham á Wayne Routledge. Verðið verður ekki gefið upp. Wayne er tvítugur kantmaður og spilaði alla leiki Crystal Palace í vetur.
Hann hefur leikið í öllum unglingaliðum Englendinga, nú síðast í undir 21 árs liðinu á Toulon mótinu í Frakklandi sem nú er nýlokið. Hann átti sinn þátt í að tryggja Englendingum þar þriðja sæti. Wayne kemur upp úr unglingastarfinu hjá Palace og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu þeirra 16 ára. Við bjóðum Wayne velkominn í okkar raðir. HJ






