Tottenham mætti í heimsókn á Villa Park á öðrum degi jóla er þeir mættu Aston Villa. Kaboul skoraði fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung en markið var dæmt ógilt sökum þess að boltinn hafði farið af leikvelli áður en boltinn barst til Kaboul. En á 23. mínútu skoraði Van der Vaart fyrsta mark leiksins eftir að Modric gaf glæsilega sendingu á Hutton á hægri kantinum sem gaf svo fyrir markið á Van der Vaart. Staðan 1-0. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum fékk Defoe að líta rauða spjaldið eftir að hafa gefið leikmanni Aston Villa olnbogaskot. Van der Vaart bætti svo öðru marki við á 67. mínútu leiksins eftir gott samspil hjá Lennon og Bale. Albrighton náði að minnka muninn fyrir Villa þegar um 8 mínútur voru til leiksloka en það dugði ekki og því fór Tottenham með sigur af hólmi, 2-1.
Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Kaboul, Ekotto, Lennon (Jenas 89), Modric (Corluka 90), Palacios, Bale, Van der Vaart (Crouch 75), Defoe. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Pavlyuchenko, Kranjcar, Bassong.






