Tottenham hafði betur gegn Portsmouth þegar síðarnefnda liðið kom í heimsókn á White Hart Lane. Staða liðanna í deildinni er mjög ólík þar sem Portsmouth berst enn um evrópusæti á meðan lítil pressa er á liði Tottenham. Töluvert marga leikmenn vantaði í lið Portsmouth vegna leikbanna og meiðsla en Tottenham var með flesta sína sterkustu menn en nokkrir leikmenn eru þó meiddir. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Darren Bent og Jamie O´Hara sem skoruðu mörkin, en þeir komu báðir inná sem varamenn.
Ramos gerði tvær breytingar frá síðasta leik þar sem hvorki King né Jenas voru í hópnum. Robinson var sem fyrr í marki og vörnin fyrir framan hann skipuð þeim Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda. Á miðjunni spiluðu Lennon, Huddlestone, Zokora og Malbranque og frammi sem fyrr þeir Berbatov og Keane. Á bekknum sátu þeir Cerny, Kaboul, Tainio, O´Hara og Bent.
Ekki er hægt að segja að veðurguðirnir hafi verið góðir við Bretana þennan laugardag og líktist veðrið frekar því sem við Íslendingar erum vanir að sjá. Nánast allt var í boði, snjór, rigning, sól og vindur. Leikurinn fór rólega af stað en eftir um tíu mínútna leik kom fyrsta hættulega færi leiksins. Keane fékk boltann vinstra meginn í vítateignum og skaut að marki en James sá við honum. Nokkrum mínútum síðar fékk Tottenham aukaspyrnu sem Huddlestone tók og skaut að marki en James var vel staðsettur og varði boltann. Á hinum enda vallarins reyndi Davis að vippa boltanum yfir Robinson og litlu munaði að það tækist en Robinson varði vel. Chimbonda var svo ekki langt frá því að koma boltanum í netið en skot hans fór rétt framhjá. Berbatov kom boltanum svo yfir marklínu Portsmouth manna á 27.mínútu eftir sendingu frá Keane en markið var dæmt af sökum rangstöðu. Stuttu síðar átti Tottenham svo dauðafæri þegar Dawson átti þrumuskot í þverslánna eftir hornspyrnu. Tíu mínútum fyrir hálfleik fékk Berbatov gott færi eftir sendingu frá Lennon inni í teig en boltinn flaug vel yfir markið og síðasta almennilega færi hálfleiksins fékk Huddlestone en boltinn fór einnig yfir markið. Staðan í hálfleik var því 0-0 þó að nóg væri um marktækifæri.
Fyrsta færi síðari hálfleiks fékk Lennon eftir um tíu mínútna leik en skot hans fór rétt framhjá markinu. Leikurinn gekk svo sinn vanagang. Bæði lið sóttu og vörðust en inn vildi boltinn ekki og á endanum voru gerðar skiptingar. Á 70.mínútu kaus Ramos að gera tvöfalda skiptingu til að hrista upp í leiknum. Lennon og Dawson fóru af velli og inná komu Bent og O´Hara. Zokora færði sig þá aftur í miðvarðarstöðuna og Malbranque fór á hægri kantinn og O´Hara á þann vinstri. Fimm mínútum síðar munaði ekki miklu að Portsmouth kæmist yfir. Utaka gaf langan bolta fram á Kanu og Robinson fór út í úthlaupið en hitti ekki boltann. Zokora hafði þó fylgt vel á eftir og náði boltanum rétt á undan Kanu beint fyrir framan markið og kom honum aftur fyrir. En á 80.mínútu kom loksins mark í leikinn. Malbranque fékk boltann hægra megin í vítateignum og skaut að marki en boltinn fór í varnarmann Portsmouth en barst þó til Berbatov. Hann skaut að markinu og Bent náði að skalla boltann frá honum framhjá James í markinu. Bent skoraði því 100.markið sem skorað var á White Hart Lane á þessu tímabili en einnig var þetta 250. leikur hans sem atvinnufótboltamaður. Var þetta einnig fimmta deildarmark hans á tímabilinu og má með sanni segja að skipting Ramos hafi borgað sig. En leikmenn Tottenham voru ekki hættir. Tveimur mínútum síðar fékk Bent langa sendingu út á vinstri kantinn þar sem hann lék á Hemma Hreiðarss., hljóp framhjá honum í átt að markinu og gaf svo fyrir markið. Þar fór boltinn framhjá Keane og barst til O´Hara sem skaut honum í netið og skoraði þar með fyrsta deildarmark sitt fyrir félagið. Báðir varamennirnir komnir með mark í leiknum. Stuttu síðar gerði Ramos svo síðustu skiptingu sína þegar Keane fór af velli og inná í hans stað kom Tainio. Leiknum lauk svo með sigri Tottenham 2-0 og liðið nú komið með 39 stig í deildinni.
Lið Spurs: Robinson, Hutton, Dawson (Bent), Woodgate, Chimbonda, Lennon (O´Hara), Huddlestone, Zokora, Malbranque, Keane (Tainio), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Kaboul.






