Tottenham fékk Wolves í heimsókn í leik helgarinnar en liðið átti harma að hefna frá síðasta tímabili því Úlfarnir unnu báðar viðureignir liðanna í deildinni. Útlitið var þó ekki gott því Úlfarnir náðu forystu í leiknum á lokamínútum fyrri hálfleiks með marki frá Fletcher. En stuttu eftir markið gerði Harry skiptingu, Kaboul fór af velli vegna meiðsla og Hutton kom inná í hans stað og átti þessi skipting eftir að borga sig. Á 75.mínútu var Hutton felldur innan vítateigs og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi víti. Van der Vaart steig á punktinn og skoraði af öryggi. Síðustu mínútur leiksins voru svo hörkuspennandi en Pavlyuchenko náði að koma Tottenham yfir á 87.mínútu og Hutton gjörtryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Lokatölur því 3-1 Tottenham í vil.
Lið Spurs: Cudicini, Kaboul (Hutton 45), Gallas, King, Ekotto, van der Vaart (Lennon 86), Huddlestone, Jenas, Bale, Crouch, Keane (Pavlyuchenko 67). Ónotaðir varamenn: Pletikosa, Bassong, Kranjcar, Palacios.






