Sigur í erfiðum útileik

0
644

Tottenham heimsótti Portsmouth á Fratton Park í leik helgarinnar en þetta var í fyrsta skipti sem Harry mætti með Tottenham á Fratton Park eftir að hann hætti hjá Portsmouth fyrir ári síðan og tók við Tottenham. Sömuleiðis voru þeir Defoe, Crouch og Kranjcar að mæta á kunnugar slóðir. Leikurinn var ansi spennandi þar sem bæði lið fengum töluvert af færum en að lokum fór Tottenham með sigur af hólmi, 1-2 með mörkum frá Ledley King og Jermain Defoe. Auk þess sem að sá síðarnefndi skoraði mark fékk hann einnig rauða spjaldið í leiknum og verður því í banni í næstu þremur leikjum. Með sigrinum hélt liðið þriðja sætinu í deildinni.

 

Harry gerði þrjár breytingar á liðinu frá jafnteflisleiknum gegn Bolton fyrir landsleikjahléð.  Gomes, King og Defoe komu inn í liðið í stað Cudicini, Palacios og Crouch. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, King, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Huddlestone og Kranjcar og frammi þeir Keane og Defoe. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Dawson, Hutton, Bentley, Palacios, Crouch og Pavlyuchenko.

 

Leikurinn fór fjöruglega af stað og þegar um 6 mínútur voru liðnar af leiknum lögðu Jenas og Lennon upp gott færi fyrir Defoe en honum tókst ekki að ná til knattarins. Tæpum tveimur mínútum síðar áttu Portsmouth menn gott færi, Boateng tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn þar sem Dindane skallaði að marki en boltinn fór framhjá. Defoe var svo nálægt því að skora strax í næstu sókn eftir góða sendingu frá Huddlestone en skot hans, sem fór framhjá James, hafnaði í stönginni. Dindane fékk svo besta tækifæri leiksins stuttu síðar þegar boltinn barst fyrir markið þar sem hann var einn og óvaldaður fyrir framan autt markið en skot hans fór yfir. Þegar 25 mínútur voru liðnar af leiknum átti Gomes frábæra markvörslu. Leikmenn Portsmouth fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn og var það Kaboul, fyrrum leikmaður Tottenham, sem tók spyrnuna. Hann þrumaði boltanum að markinu og Gomes náði að teygja sig í boltann og koma honum framhjá markinu. En þegar rétt tæplega hálftími var liðinn af leiknum kom fyrsta mark leiksins. Kranjcar tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn. Þar stökk Kóngurinn sjálfur manna hæst og skallaði boltann í netið. Staðan orðin 0-1 gestunum í vil. Bæði lið reyndu svo að byggja upp sóknir og rétt undir lok fyrri hálfleiks náðu Tottenham menn að bæta við öðru marki. Huddlestone og Jenas áttu gott samspil og Jenas fékk svo boltann hægra meginn við vítateiginn og gaf fyrir markið þar sem Defoe potaði boltanum í netið framhjá James. Staðan orðin 0-2 og þannig voru hálfleikstölur.

 

Leikmenn Portsmouth voru ekki á því að gefast upp þó að staðan væri ekki góð og komu ákveðnir til leiks. Strax á fyrstu mínútum seinni hálfleiks vildu þeir fá vítaspyrnu þar sem þeir töldu að boltinn hefði farið í hönd Corluka inni í teig en dómarinn var ekki á sama máli. Bæði lið reyndu hvað þau gátu að sækja en hvorugu liðinu tókst að skapa sér dauðafæri á fyrri parti seinni hálfleiks. Á 56. mínútu kom Crouch inná í stað Keane við lítinn fögnuð stuðningsmanna Portsmouth og létu þeir aðeins heyra í sér. En litlu munaði að þeir hefðu tilefni til að fagna því Smith átti gott skot að marki sem Gomes varði meistaralega og svo fékk Dindane upplagt færi en skaut framhjá. Það var svo á 59.mínútu sem stuðningsmenn Portsmouth gátu fagnað en þá minnkaði Boateng muninn fyrir Portsmouth. Sending kom fyrir markið af hægri kantinum og Boateng var einn og óvaldaður á fjarstönginni og skaut boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 1-2 og Boateng leyndi ekki ánægju sinni að skora gegn sínu fyrra félagi. Ekki var útlitið gott fyrir Tottenham því stuttu síðar fékk Defoe reisupassann eftir kjánalega framkomu. Mokoena og Defoe áttu í baráttu við boltann og féll Mokoena í grasið. Defoe tók þá upp á því að stampa létt á fótinn á Mokoena beint fyrir framan nefið á Dowd sem var ekki í vafa og vék honum af velli samstundis. Hann verður því í banni í næstu þremur leikjum, eða deildarleikjum gegn Stoke og Arsenal og Carling Cup leik gegn Everton. Harry gerði fljótlega breytingu á liðinu, tók Kranjcar af velli og setti Palacios inná í staðinn til að styrkja miðjuna.  Gomes sýndi svo klassa markvörslu þegar Portsmouthmenn fengu tvö góð færi þegar um korter var til leiksloka. Leikmenn Portsmouth ætluðu svo sannarlega að nýta sér það að vera einum fleiri og sóttu stíft til að ná jöfnunarmarkinu. Leikmenn Tottenham voru að mestu á eigin vallarhelmingi að verja stöðu sína og þegar um 5 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma kom Dawson inná fyrir Huddlestone til að þétta vörnina. Lennon fékk svo gott færi til að gera út um leikinn þegar hann var nánast kominn einn á móti James í markinu en skot hans fór framhjá markinu. Töluverðum tíma var bætt við í seinni hálfleik, alls 5 mínútum, enda mikið um minni háttar pústra meðal leikmanna í skapmiklum leik. Michael Brown, fyrrum leikmanni Tottenham, tókst svo að næla sér í tvö gul spjöld í uppbótartíma, annað fyrir brot á Ekotto og hitt fyrir brot á Lennon. Honum var því vikið af velli á lokamínútunum. En leikmenn Tottenham héldu forystu sinni út leikinn og fóru með sigur af hólmi, 1-2 og eru því enn í þriðja sæti deildarinnar.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, King, Bassong, Ekotto, Lennon, Jenas, Huddlestone(Dawson), Kranjcar(Palacios), Defoe, Keane(Crouch). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Hutton, Bentley, Pavlyuchenko.

DEILA
Fyrri fréttTottenham – Portsmouth
Næsta fréttTap gegn Stoke