Sigurhrinan á enda

0
654

Góðu gengi Tottenham liðsins lauk um helgina þegar liðið heimsótti Blackburn á Ewood Park. Liðið hafði ekki tapað í síðustu 7 deildarleikjum, unnið 5 af þeim leikjum og gert tvö jafntefli. Leikmenn voru því fullir sjálfstraust þegar þeir mættu á Ewood Park og leikurinn hófst vel þar sem Keane kom Tottenham yfir úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. En í seinni hálfleik fékk Palacios að líta rauða spjaldið og eftir það hrundi leikur Tottenham og Blackburn náði að skora tvívegis á loka mínútum leiksins og stela þar með sigrinum. Tottenham er því enn í 11. sæti deildarinnar með 38 stig.

 

Harry kaus að gera ekki breytingar á liðinu frá síðasta leik enda oft sagt að ekki eigi að breyta sigurliði. Gomes var því í markinu og vörnin skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Palacios og Modric og framlínan var skipuð þeim Keane og Bent. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Dawson, Chimbonda, Zokora, Bentley, Huddlestone og Pavlyuchenko.

 

Leikurinn fór rólega af stað og ekki mikið um dauðafæri á fyrstu mínútum leiksins. Fyrsta hættulega færið fengu Blackburn menn á 12. mínútu þegar Pedersen gaf háan bolta fyrir markið en Diouf skallaði rétt framhjá marki Tottenham. Stuttu síðar fengu leikmenn Tottenham hornspyrnu eftir góðan leik Modric. Modric tók spyrnuna sjálfur og gaf inn í teiginn þar sem King náði til boltans en skalli hans fór rétt framhjá fjærstönginni. Eftir tæplega 20 mínútna leik fékk Bent upplagt færi til að koma Tottenham yfir. Palacios gaf góða stungusendingu á hann en skot Bent var vel varið af Robinson, fyrrum markverði Tottenham. Á 23. mínútu munað litlu að Blackburn næði forystu í leiknum þegar Pedersen átti langt innkast á Diouf sem skaut að marki en Ekotto náði til boltans á síðustu stundu. Á 29. mínútu dró svo til tíðinda. Lennon var mættur upp hægri kantinn og gaf fyrirgjöf inn í teiginn. Boltinn náði þó ekki lengra en í hönd Givet, leikmanns Blackburn og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu. Robbie Keane steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Robinson, sem þó kastaði sér í rétt horn. Staðan því orðin 0-1, Tottenham í vil. Eftir markið róaðist leikurinn töluvert og leikmenn Tottenham náðu nokkurri yfirhönd í leiknum. Ekki var þó mikið um hættuleg færi það sem eftir lifði hálfleiks og áttu Palacios og Woodgate hálffæri þegar nokkar mínútur voru til leikhlés. Staðan var því 0-1 í hálfleik sem myndu teljast góðar fréttir fyrir Tottenham tölfræðilega séð þar sem liðið hafði ekki tapað leik undir stjórn Harry þar sem liðið hafði forystu í hálfleik.

 

Engin breyting var gerð á Tottenham liðinu í hálfleik enda ekki ástæða til þess. Liðið var að leika ágætlega þrátt fyrir að ná ekki að klára færin og gera út um leikinn. Leikmenn Blackburn virtust þó líflegri á fyrstu mínútum leiksins og voru ekki á því að gefast upp svo auðveldlega. Bæði lið reyndu að sækja að marki en markverðir beggja liða voru öruggir og stóðu fyrir sínu. Þegar um klukkustund var liðin af leiknum gerðist umdeilt atvik. Mokoena, leikmaður Blackburn, hleypur Palacios niður með því að gefa honum högg í andlitið með öxlinni. Í endursýningu má sjá að þetta er glórulaust brot og dómarinn var með gott sjónarhorn en dæmdi þó aðeins aukaspyrnu. Blackburn menn voru þar með heppnir að hafa ekki misst mann af velli því oft hafa menn fokið af velli eftir minni sakir en þessa. Leikmenn Tottenham náðu svo að sækja töluvert á mark Blackburn manna en tókst þó ekki að koma boltanum yfir línuna. McCarthy var svo nálægt því að jafna leikinn á 75. mínútu en skalli hans fór rétt framhjá stönginni eftir góða fyrirgjöf frá Diouf. En á 80.mínútu urðu leikmenn Tottenham fyrir áfalli. Á aðeins tveimur mínútum fékk Palacios 2 gul spjöld og var því vísað af leikvelli. Var þetta nokkuð harður dómur þar sem Palacios snerti ekki Dunn, leikmann Blackburn í seinna brotinu en Dunn tókst að blekkja dómarann með góðum leikaraskap og því fékk Palacios reisupassann. Það má með sanni segja að þetta atvik gjörbreytti leiknum. Tveimur mínútum síðar voru leikmenn Blackburn búnir að jafna leikinn með marki frá McCarthy. Redknapp gerði strax skiptingu eftir markið, Lennon fór af velli og Zokora kom inná í hans stað til að þétta miðjuna. En leikmönnum Blackburn tókst þó að bæta við marki á 89.mínútu úr hornspyrnu eftir klaufaskap í vörn Tottenham þar sem Oojer endaði einn og óvaldaður inni í markteig og var ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið. Leiknum lauk með sigri Blackburn 2-1.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon (Zokora), Jenas, Palacios, Modric, Keane, Bent. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Dawson, Chimbonda, Bentley, Huddlestone, Pavlyuchenko.

 

 

DEILA
Fyrri fréttFleiri leikmenn lánaðir
Næsta fréttMyndir