Nágrannaslagur Spurs og Arsenal fór 1-1 í dag og skoraði Ledley King mark Spurs í fyrri hálfleik. Edgar Davids var í leikbanni og í hans stað kom Finninn Teemu Tainio, en annars var liðið óbreytt frá síðasta leik.
Spurs byrjuðu leikinn mjög vel og gáfu leikmönnum Arsenal ekki neitt pláss til að spila á milli sín. Þessi barátta Spurs skilaði marki á 18. mínútu þegar fyrirliðinn Ledley King skallaði boltann í markið eftir aukaspyrnu frá Michael Carrick, sem átti frábæran leik í dag.
Skömmu áður hafði King átt mjög mikilvæga tæklingu við mark Spurs, en hann var besti maður Spurs í leiknum. Leikmenn Spurs hefðu síðan getað bætt við mörkum fyrir háfleik, en skot Jenas var varið og skot Carrick fór rétt framhjá.
Jenas átti þó besta færi Spurs rétt fyrir hálfleik; Defoe fór glæsilega framhjá Lauren og sendi boltann fyrir marikið en Jenas tókst ekki að teygja fótinn í boltann.
Eftir hléið voru leikmenn Spurs ekki jafn ákveðnir og baráttuglaðir. Þeir stóðu lengra frá leikmönnum Arsenal og gáfu þeim tíma og pláss til að spila léttilega á milli sín.
Jöfnunarmarkið hafði svosem legið í loftinu en maður hefði ekki búist við öðrum mistökum Paul Robinson í tveimur leikjum. Vonandi mun hann rífa sig upp því að við vitum öll að hann er einn af bestu markvörðum heims.
Leikurinn var frekar prúðmannlega leikinn í fyrri hálfleik, en rétt fyrir hálfleik fór Teemu Tainio illa út úr skallaeinvígi við Sol Campbell og eins og sést á myndinni.
Eftir markið voru bæði lið frekar stressuð og tókst hvorugu liðinu að skapa sér hættulegt færi það sem eftir lifði leiks. Í upphafi tímabilsins hefðu án efa margir sætt sig við jafntefli úr þessum leik, en maður verður að viðurkenna að maður sé ekki sáttur við jafntefli.
Við erum samt enn ofarlega í deildinni og næsti leikur okkar gegn Bolton, á útivelli, gæti verið mikilvægur upp á framhaldið. Liðið hefur nú farið 7 leiki í röð án taps í deildinni en það er frábær árangur.
Lið Spurs: Robinson 6, Stalteri 6, Lee 7, King 9, Dawson 8, Tainio 8 (Mendes, 77), Carrick 9, Jenas 7, Lennon 7 (Reid, 72), Defoe 8 (Keane, 81), Mido 8. Varamenn: Cerny og Naybet
Viðtal við Jol og King(tenglar hægra megin): http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/eng_prem/4366690.stm






