SPURS Á LEIÐ Á WEMBLEY!!!

0
599

Stuðningsmenn Spurs um heim allan glöddust verulega í gær þegar liðið náði að tryggja sér sæti í úrslitum Carling Cup á Wembley sem fram fer þann 24.febrúar. Það sem gerði þessa ánægjustund enn betri var það að liðið lagði erkifjendur sína, Arsenal í undanúrslitaleiknum og var það fyrsti sigurinn á þeim í 9 ár. Leiknum lauk með stórsigri Spurs 5-1 og fór því liðið áfram á samanlögðum úrslitum 6-2. Mörk Tottenham skoruðu þeir Jenas, Keane, Lennon og Malbranque en annað mark Tottenham skoraði Bendtner í sitt eigið mark. Adebayor skoraði mark gestanna.

     Stemmningin á White Hart Lane var mjög mikil og strax þegar leikmenn gengu út á völlin var ljóst að þeir hefðu tólfta manninn með sér, þ.e. gríðarlegan stuðning áhorfenda. Ramos stillti upp sínu sterkasta liði og byrjaði Cerny sem fyrr í marki enda staðið sig mjög vel í undanförnum leikjum. Vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, King og Lee og á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Tainio og Malbranque. Frammi spiluðu þeir Berbatov og Keane en Defoe var á bekknum ásamt Robinson, Boateng, Huddlestone og O´Hara.

     Leikurinn byrjaði fjöruglega eins og búast mátti við enda gríðarlegur rígur milli þessara liða þar sem þau er grannalið og eiga sér langa sögu. Það leið ekki langur tími þar til White Hart Lane gjörsamlega sprakk af fögnuði. Á þriðju mínútu gaf Berbatov sendingu á Jenas sem tók á sprett með boltann, lék á nokkra varnarmenn Arsenal og kom boltanum framhjá Fabianski neðst í fjærhornið, stöngin inn. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham og stemmningin á vellinum varð enn meiri. Arsenalmenn létu þetta ekki of mikið á sig fá og spiluðu ágætis bolta sín á milli sem og Tottenham. Færin voru þó heldur í hag Tottenham og átti Keane ansi gott færi sem Diaby gerði vel í að koma frá marki. Á 18.mínútu kom fyrsta skipting Wengers þar sem Denilson varð fyrir einhverjum meiðslum og Fabregas kom inn á í staðinn. Það stoppaði þó ekki Tottenham í að spila sinn leik af miklu öryggi og eftir rúmlega 25.mínútna leik bættu þeir við öðru marki. Jenas tók aukaspyrnu vel fyrir utan teig og kom boltanum inn í teig en þar varð Bendtner fyrir því óláni að hoppa manna hæstur og skalla boltann í sitt eigið mark. Staðan orðin 2-0 og gleðin allsríkjandi á White Hart Lane. Stuttu síðar fékk Berbatov upplagt tækifæri til að bæta öðru marki við en þá fékk hann frábæra sendingu frá Jenas og skaut að marki en boltinn hafnaði í stönginni og fór aftur út í teiginn. Diaby átti skot rétt yfir markið á 37.mínútu og rétt fyrir hálfleik átti Jenas gott hlaup að marki en skot hans hafnaði í hliðarnetinu. Staðan í hálfleik var því 2-0 og fyllilega verðskulduð enda Tottenham mun hættulegri í sóknaraðgerðum sínum.

     Ekki létu mörkin bíða eftir sér í síðari hálfleik frekar en þeim fyrri og eftir nokkurra mínútna leik gaf Lennon frábæra sendingu á Keane sem skaust inn fyrir vörn Arsenal og skoraði framhjá Fabianski sem var þó ekki langt frá því að verja boltann. Staðan orðin 3-0 fyrir Tottenham og þeir voru greinilega ekki að láta slæma tölfræði í leikjum gegn Arsenal hafa áhrif á sig. Bendtner var svo óheppinn að skora ekki fyrir Arsenal en skot hans að marki hafnaði í þverslánni en Fabregas náði boltanum og skaut að marki en Cerny var rétt staðsettur og varði vel. Þegar líða tók á hálfleikinn fóru leikmenn Arsenal að færa sig framar á völlinn til að sækja meira að marki Tottenham enda þurftu þeir að skora að minnsta kosti 3 mörk til að knýja fram framlengingu. Tottenham nýtti sér það að liðið var fámennara í vörninni og Chimbonda og Lennon spiluðu sín á milli upp kantinn og Chimbonda gaf svo fyrir markið á Keane.  Hann kaus þó að gefa boltann aftur á Lennon sem var í mun betra færi og skoraði fjórða mark Tottenham af miklu öryggi. Þegar hálftími var eftir af leiknum og staðan orðin 4-0 gerði Ramos tvær breytingar á liðinu. Hann tók bæði Berbatov og Keane út af og setti í staðinn Defoe og Boateng inná. Á sama tíma gerði Wenger síðustu skiptingarnar sínar þegar Adebayor og Eduardo komu inná. Adebayor hefur verið leikmönnum Tottenham erfiður í fyrri leikjum og oftast náð að skora gegn þeim og þessi leikur var engin undantekning. Eduardo gaf sendingu á Adabayor sem náði að skora framhjá Cerny í markinu og staðan því orðin 4-1. En lengra komust leikmenn Arsenal ekki í þessum leik og það var í raun Tottenham sem bætti við á lokamínútum leiksins. Jenas hljóp upp hægri kantinn og gaf fyrir markið þar sem Malbranque stóð einn og óvaldaður og átti ekki í erfiðleikum með að skora. Lokatölur leiksins voru því 5-1 og sætur sigur eftir 9 ára bið. Tottenham er því komið í úrslitaleik deildarbikarsins þann 24.febrúar og mætir þar annaðhvort Chelsea eða Everton en þau leika seinni leik sinn í kvöld.

Lið Spurs: Cerny, Chimbonda, Dawson, King, Lee, Lennon (Huddlestone), Jenas, Tainio, Malbranque, Berbatov (Defoe), Keane ( Boateng). Ónotaðir varamenn: Robinson, O´Hara.