Spurs – Middlesboro

0
670

Á morgun fer fram leikur Spurs og Middlesboro í deildinni og mun leikurinn hefjast kl. 20:00. Áhugasömum er bent á að leikurinn verður sýndur í beinni í Ölver á stóru tjaldi með hljóði.

Varðandi leikinn sjálfan er það að frétta að búist er við einhverjum breytingum á liðinu frá síðasta leik og þá er kannski miðjan líklegust til breytinga.

Jenas kemur líklega inn í liðið og eftir nokkra slæma leiki gæti Zokora einnig dottið niður á bekkinn. Þá kæmi heldur ekki á óvart að sjá Jermain Defoe í sókninni.

Hópur Spurs: Robinson, Cerny, Chimbonda, Dawson, Lee, King, Assou-Ekotto, Davenport, Davids, Huddlestone, Jenas, Ziegler, Murphy, Malbranque, Tainio, Zokora, Lennon, Defoe, Keane, Berbatov.