Spurs sigra fyrsta heimaleikinn

0
659

Fyrsti sigur Tottenham í deildinni kom í gærkvöldi þegar Sheffield Utd voru lagðir af velli 2-0, með mörkum frá Dimitar Berbatov og Jermaine Jenas.

Spurs voru mun betra liðið í fyrri hálfleik og hefðu getað skorað fleiri mörk ef fleiri tækifæri hefðu verið nýtt. En það var sérstaklega leikur Robbie Keane sem stóð upp úr. Endurkoma hans í byrjunarliðið eftir smávægileg meiðsli var glæsileg og var hann lykillinn af góðum leik Spurs framan af leiknum.

Skilningur hans og leikgleði smitast um allt liðið og átti hann stóran þátt í báðum mörkunum. Fyrst átti hann frábæra sendingu upp knatinn á Aaron Lennon og í seinni markinu var það frábær sending á Dimitar Berbatov sem opnaði vörn andstæðinganna.

Þó svo að sigurinn hafi nánast verið í höfn í hálfleik héldu leikmenn Spurs ekki áfram af sama krafti eftir hlé. Spilið róaðist mikið og marktækifærum fækkaði ásamt því að Sheffield komust meira inn í leikinn. En á endanum var 2-0 sigur sanngjörn úrslit og svo sannarlega léttir fyrir marga að hafa landað fyrsta sigrinum á þessari leiktíð.

Lið Spurs: Robinson 6, Assou-Ekotto 7, Dawson 7, Davenport 7, Lee 7, Lennon 8, Jenas 7, Tainio 6 (Zokora 69), Davids 7, Berbatov 8, Keane 9 (Defoe 82). Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri, Gardner

DEILA
Fyrri fréttAaron Lennon
Næsta fréttSK Slavia Praha í UEFA