Spurs slær út Everton í Carling bikarnum

0
672

Það ríkti mikil eftirvænting eftir leik Tottenham og Everton í Carling bikarnum á þriðjudaginn. Ljóst var að bæði lið vildu komast áfram í keppninni. Moyes stjóri Everton var ekki parhrifinn af leikjaálaginu sem liðið barðist við. Þetta var þriðji leikur liðsins á 6 dögum og í ofan á lag glímdi Everton við meiðslavandræði. Þó leikjaálagið hafi verið minna hjá Tottenham að undanförnu glímdi Harry þó við vandamál í mannavali. Harry gerði 5 breytingar á liðinu. Woodgate var frá vegna heilahristings sem hann hlaut í leiknum gegn Stoke á Laugardaginn og tók því Dawson stöðu hans, Kranjcar hafði spilað í bikarnum með Portsmouth og var því ekki löggiltur í þennan leik, Bale tók stöðu hans á vinstri kannti, Lennon meiddist í leiknum gegn Stoke og var enn frá vegna þeirra meiðsla og Bentley fór því í stöðu hans á hægri kannti. Auk þeirra skipti Harry Corluka út fyrir Hutton og Crouch vék fyrir Pavlyuchenko.

Það voru leikmenn Everton sem byrjuðu leikinn betur. Strax á 4. mínútu átti Saha gott skot að marki Tottenham sem Gomes náði að blaka yfir þverslánna. Eftir þetta skiptust liðin á að eiga færi. Þegar hálftími var liðinn af leiknum fór þó að draga til tíðinda. Ekotto á þá fyrirgjöf inn í teiginn sem Distin misreiknar og boltinn berst til Keane, sem nær að pota honum fram hjá Howard sem kom askvaðandi í átt að honum. Boltinn fór í stöngina og Everton menn náðu að hreinsa boltann úr teignum. Sóknin var þó ekki búin því boltinn barst til Bentley sem gaf boltann inn í teig frá hægri vængnum og boltinn barst þar til Huddlestone sem var á fjarstöng. Huddlestone gerði engin mistök og þrumaði boltanum með vinstri fæti í markið. Staðan því orðin 1-0 eftir rúman hálftíma. Á 37. mínútu átti Bentley góða fyrirgjöf inn í teig frá hægri. Bassong var hársbreidd frá því að stanga boltann í netið. Staðan í hálfleik því 1-0 fyrir heimamenn í Tottenham.

 

Líkt og í fyrri hálfleik byrjuðu Everton menn síðari hálfleikinn betur. Strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks átti Cahill gott skot sem Gomes náði að blaka í burtu með fingurgómunum. Gomes varði enn og aftur glæsilega 10 mínútum siðar eða á 56. mínútu. Þá náði Jo, sem hafði komið inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks, að stinga sér framhjá Bassong og náði góðu skoti að marki. Í næstu fengu Tottenham dæmda vítaspyrnu, þegar Distin felldi Keane innan vítateigs og dómarinn benti umsvifalaust á punktinn. Það var Keane sem tók spyrnuna sem Howard í markinu varði, Bentley náði frákastinu og skaut á markið, en Howard náði aftur að verja skotið, Bale náði frákastinu og skaut að marki, en varnarmenn Everton vörðust skotinu, Það var svo Keane sem batt enda á sirkusinn með að ná frákastinu og skora. Staðan því 2-0 fyrir Spurs. Eftir þetta datt svolítið botninn úr leik Everton. Þeir áttu skot á 65. mínútu sem Gomes sá við. Á 72. mínútu skall hurð nærri hælum þegar Hutton átti misheppnaða sendingu á Gomes. Sendingin fór framhjá Gomes og virtist stefna í markið, en Gomes bjargaði málunum á elleftu stundu. Fleiri mörk komu ekki í leiknum og Tottenham því komið áfram í bikarnum á meðan lánlausir Everton menn sitja eftir. Þess má geta að aðeins ein innáskipting átti sér stað í leiknum þegar Jo kom inná í upphafi síðari hálfleiks. Engar aðrar skiptingar áttu sér stað hjá hvorugu liðinu.

Liðið: Gomes, Hutton, Dawson, Bassong, Ekotto, Bentley, Huddlestone, Palacios, Bale, Pavlyuchenko, Keane.

 

 

EKG

DEILA
Fyrri fréttTap gegn Stoke
Næsta fréttDregið í Carling Cup