Tottenham vann stórsigur á ítalska liðinu Roma á White Hart Lane í síðasta æfingaleik liðsins fyrir komandi tímabil. Leiknum lauk með 5-0 sigri heimamanna og voru það þeir Bentley(2), Bent(2) og Lennon sem skoruðu mörkin.
Ramos stillti upp sterku liði fyrir þennan leik. Gomes stóð á milli stanganna og í vörninni fyrir framan hann voru þeir Zokora, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir Bentley, Jenas, Modric og Dos Santos og frammlínan var skipuð þeim Berbatov og Bent. Bekkurinn var einnig skipaður hæfileikaríkum knattspyrnumönnum en þar sátu þeir Jansson, Gunter, Bale, Lennon, Huddlestone, Gilberto, O´Hara og King.
Þessi leikur var fyrsti leikur þeirra Gomes, Modric, dos Santos og Bentley á White Hart Lane og var þeim vel tekið af stuðningsmönnum Tottenham. Og Bentley var ekki lengi að þakka fyrir þessar móttökur því á þriðju mínútu leiksins tók hann aukaspyrnu vinstra megin fyrir utan teiginn og gaf góðan bolta fyrir markið. Þar náði enginn til boltans heldur skoppaði hann fyrir framan markið og í netið framhjá Arthur, markverði Roma. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Tveimur mínútum síðar bættu leikmenn Tottenham stöðu sína þegar Bent hélt áfram uppteknum hætti og skoraði annað mark liðsins eftir varnarmistök Rómamanna. Leikmenn Spurs héldu áfram að pressa á mark Roma og átti Berbatov sæmilegt færi sem Arthur varði og Jenas skaut rétt yfir markið. Það var ekki fyrr en að líða tók á fyrri hálfleikinn að Gomes fékk eitthvað að reyna almennilega á sig þegar Aquilani átti gott skot en Gomes varði vel. Aftur var Gomes með sitt á hreinu nokkrum mínútum síðar þegar Vucinic komst í færi. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var Bentley aftur hylltur þegar hann skaut langskoti vel fyrir utan teig og hafnaði boltinn í vinstra horninu í marki Roma. Staðan í hálfleik var því 3-0.
Ramos gerði 2 skiptingar í hálfleik enda bara um æfingaleik að ræða og um að gera að leyfa öllum að spila með. Ekotto og Berbatov fóru af velli og inná komu þeir Bale og Lennon. Seinni hálfleikur hófst á sömu nótum og sá fyrr endaði, þar sem leikmenn Spurs sóttu hart að marki Roma. Á 49. mínútu bættu leikmenn Tottenham við fjórða markinu þegar Bentley sendi boltann glæsilega á dos Santos á vinstri kantinum og hann tók á sprett í áttina að markinu og gaf þar á Lennon sem þrumaði boltanum í netið framhjá Arthur. Fjórum mínútum síðar skoraði Bent svo fimmta og síðasta mark Spurs í þessum leik en þetta var annað mark hans í leiknum og það tólfta í sex leikjum. Bentley tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn á Woodgate sem skallaði boltann niður fyrir fætur Bent og Bent átti ekki í vandræðum með að koma knettinum í netið. Stuttu síðar munaði litlu að hann næði þrennunni en Arthur náði að verja. Eftir klukkustundar leik komu King og Huddlestone inná völlinn og útaf fóru þeir Dawson og Modric. Fimm mínútum síðar var Zokora tekinn af velli eftir að hafa lent í útistöðum við Roma leikmann og fékk að launum að líta gula spjaldið. Inná í hans stað kom Gunter. Enn hélt Ramos svo áfram að skipta inná til að leyfa öllum að spila og næstir inná völlinn voru þeir O´Hara og Gilberto í stað þeirra Jenas og Bentley. Síðasta skiptingin kom svo þegar um korter var eftir af leiknum en þá fór Gomes af velli og inná kom hinn ungi og efnilegi Jansson í markið. Lítið markvert gerðist það sem eftir lifði leik fyrir utan það að leikmanni Roma var vikið af velli á lokamínútunum eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald í leiknum fyrir brot á Aaron Lennon.
Lið Spurs: Gomes (Jansson), Zokora (Gunter), Dawson (King), Woodgate, Ekotto (Bale), Bentley (Gilberto), Jenas (O´Hara), Modric (Huddlestone), Dos Santos, Bent og Berbatov (Lennon).






