Tap gegn Celtic

0
686

Tottenham mætti skoska liðinu Celtic í síðari leik sínum á Wembley Cup mótinu á sunnudaginn. Eins og í fyrri leiknum á mótinu gegn Barcelona, leyfði Harry nokkrum ungum strákum að spila hluta af leiknum ásamt því að flestir leikmenn aðalliðsins fengu smá leiktíma til æfingar. Celtic stillti að sama skapi upp blönduðu liði aðalleikmanna og ungra leikmanna. Ekki er hægt að segja að leikurinn hafi verið æsispennandi en honum lauk með 2-0 sigri Celtic manna og var þetta fyrsti tapleikur Tottenham á undirbúningstímabili síðan í ágúst 2004. Celtic menn fóru því með sigur af hólmi á mótinu, en þeir unnu einnig hinn leikinn sinn gegn Al Ahly.

 

Eins og kunnugt er á Harry í basli með að stilla upp almennilegri varnarlínu fyrir komandi tímabil þar sem þrír aðalmiðverðir liðsins eru allir á sjúkralista. Hann kaus því að reyna mismunandi menn í miðverðinum og fengu Chimbonda og Dervite það hlutverk að byrja í stöðu miðvarðar. Liðið var annars þannig stillt upp að Gomes byrjaði í markinu og vörnin var skipuð þeim Hutton, Chimbonda, Dervite og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og O´Hara og frammi léku þeir Bent og Keane.

 

Leikurinn fór rólega af stað en strax á 9.mínútu tókst Celtic mönnum að komast yfir í leiknum. Caddis tók á sprett upp hægri kantinn og gaf góða fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Killen stóð einn og óvaldaður á markteigslínunni og skallaði boltann í netið. Staðan orðin 1-0 fyrir Cetic. Leikmenn Tottenham reyndu að svara fyrir sig en áttu í vandræðum með að skapa sér færi. Liðið fékk þó þrjú góð tækifæri á næsta korterinu og var það Darren Bent sem var í sviðsljósinu í öll þrjú skiptin. Fyrst fékk hann sendingu inn fyrir frá Keane en skot hans á markið var varið af markverði Celtic. Síðan fékk hann gott skallafæri en skallaði boltann beint í fangið á markverði Celtic. Þriðja færið fór svo framhjá markinu. Huddlestone fékk svo gott færi til að jafna með þrumuskoti en enn á ný varði markvörður Celtic. En það voru svo Celtic menn sem bættu við marki undir lok fyrri hálfleiks. Samaras vann boltann á miðjum vellinum og lék vel á Dervite. Hann tók svo á sprett upp völlinn í áttina að markinu og hljóp nokkra leikmenn Tottenham af sér áður en hann kláraði færið með því að koma boltanum í netið framhjá Gomes. Staðan orðin 2-0 og voru það hálfleikstölur en litlu munaði að Killen næði að bæta þriðja markinu við rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

 

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu í hálfleik líkt og hann hefur gert á undirbúningstímabilinu. Átta leikmenn komu inná í hálfleik, þeir Cudicini, Naughton, Corluka, Rose, Modric, Livermore, Pavlyuchenko og Defoe. Liðið var því þannig stillt upp í seinni hálfleik: Cudicini var í markinu og varnarlínan skipuð þeim Naughton, Corluka, Chimbonda og O´Hara. Á miðjunni léku þeir Modric, Huddlestone, Livermore og Rose og frammi þeir Pavlyuchenko og Defoe.

 

Litlu munaði að Celtic bætti við þriðja markinu strax á annarri mínútu seinni hálfleiks en skot McCourt fór framhjá. Livermore átti svo nokkur færi til að skora hjá Celtic en það tókst ekki. Celtic menn náðu svo að bjarga á línu skot frá Modric. Það gerðist svo fátt markvert í leiknum þar til um 20 mínútur voru eftir til leiksloka en þá fengu Celtic menn gott færi en skotið fór yfir markið. Á 76.mínútu kom Bostock inn á í stað Huddlestone og litlu munaði að hann næði stoðsendingu á þessu korteri, fyrirgjöf hans fór rétt framhjá Defoe. Obika kom svo inná á 82. mínútu í stað O´Hara. En mörkin urðu ekki fleiri í leiknum, Celtic fór með sigur af hólmi og hampaði bikarnum í lok leiks sem sigurvegarar mótsins. Fyrsta tap liðsins á undirbúningstímabilinu síðan árið 2004 er staðreynd og greinilegt að leikmenn þurfa að nýta tímann vel til æfinga næstu þrjár vikurnar áður en tímabilið hefst þann 16.ágúst.

 

Lið Spurs: Gomes (Cudicini), Hutton (Naughton), Chimbonda, Dervite (Corluka), Ekotto (Rose), Lennon (Modric), Huddlestone (Bostock), Palacios (Livermore), O´Hara (Obika), Keane (Pavlyuchenko), Bent (Defoe).

 

SAJ