Taplausir í æfingarleikjunum

0
516

Í gær laugardag spilaði Tottenham síðasta æfingarleik sinn fyrir komandi tímabil. Andstæðingarnir voru Real Sociedad frá Spáni. Leikurinn endaði 2-1 sigri. Mörkin gerði Defoe og Dawson. Ég sá leikinn ásamt bróður mínum Þorsteini og þakka ég honum fyrir þetta tækifæri á að sjá liðið spila. En að leiknum. 

Uppstillingin á liðinu var eins og búast má við að hún verði á næsta laugardag gegn Bolton nema Keane og/eða Tainio ná sér af meiðslum. Robinson var að sjálfsögðu í markinu og verður ekki kennt um markið sem við fengum á okkur en það var mjög svipað markinu sem Gallas gerði gegn okkur síðasta vetur. Ekotto var í vinstri bakverðinum og stóð sig mjög vel. Dawson og Davenport voru miðverðir og leystu verkefnið vel. Dawson gerði seinna mark okkar og vonandi er það ávísun á svona mörk í vetur en á síðasta tímabili kom alltaf eitthvað í veg fyrir að hann skoraði svona mörk. Dawson gerði reyndar annað mark en það var dæmt af vegna meintrar rangstöðu. Lee var svo í hægri bakverðinum og stóð sig bara nokkuð vel þar. Það er nokkuð ljóst að Lee verður meira hægra megin en vinstramegin í vetur miðað við undirbúningsleikina sem spilaðir hafa verið. Annar nýr leikmaður vakti athygli en hann var að leika sinn fyrsta leik á WHL en það var Zokora. Miðað við það sem ég sá þá eigum við ekki eftir að sakna Carrick. Bara sem dæmi þá tók Zokora flestar hornspyrnurnar og þær voru miklu betri en maður sá frá Carrick og sem sönnun á því kom seinna markið eftir hornspyrnu hans á fjarstöng þar sem Berbatov stökk upp og skallaði niður í teigin þar sem Davenport olli vandræðum fyrir varnarmenn Real sem varð til þess að boltinn datt fyrir Dawson sem afgreiddi boltann með vinstri í markið. Aðrir á miðjunni voru Davids, Jenas og Lennon. Davids sýndi sömu baráttu og áður en missti stundum boltann frá sér. Hann átti þó stungusendinguna á Defoe sem hann skoraði úr fyrra markið. Lennon var mjög góður og bara hélt áfram þar sem frá var horfið í vor. Jenas hinsvegar átti misjafnan dag. Gerði fína hluti en hvarf ansi mikið í seinni hálfleik. Hann átti þó skot í þverslá í leiknum sem kom eftir hornspyrnu frá Zokora og skalla frá Berbatov. Frammi voru Defoe og Berbatov en Keane var meiddur. Defoe var í fínu formi og gerði fyrra markið eins og áður sagði. Dæmigert Defoe mark af um 20 metra færi. Berbatov var öflugur frammi og átti skallan niður í teyginn í seinna markinu. Hann hefði líka átt að vera eigingjarnari þegar hann komst upp að markinu hægra megin seint í leiknum en ákvað að renna boltanum fyrir markið á Ziegler en botinn fór þess í stað í fót varnarmanns og færið fór forgörðum. Ziegler, Huddlestone, Ghaly, Murphy komu allir inn á í seinni hálfleik og stóðu þeir sig vel. Real spilaði nokkuð fast í leiknum og uppskáru þeir tvö gul spjöld.
Nú er Tottenham búið að spila viðð góð lið frá Frakklandi, Þýskalandi, Spáni og Ítalíu án þess að tapa og verður að segja að það hljóti að gefa góð fyrirheit um veturinn framundan. Nýju mennirnir eru allir að aðlagast leik liðsins og nú er bara að sjá hvernig þeim farnast í deildinni þegar alvaran hefst næstkomandi laugardag. Eitt er víst að eftir að hafa séð þá spila í gær kvíð ég engu.
Mörkin úr leiknum er hægt að sjá á spjallsíðunni.

Liðið:  Robinson, Lee, Assou-Ekotto, Zokora, Dawson, Davenport, Lennon (Ghaly, 78), Jenas (Huddlestone, 78), Berbatov, Defoe (Murphy, 70), Davids (Ziegler, 78). Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri, Gardner, Barnard.   

Haraldur J.