Í dag laugardag hófst loksins langþráð sparktíð. Við mættum Portsmouth og höfðum sigur 0-2. Fyrra markið var sjálfsmark þegar varnarmaður Portsmouth var að reyna að ná boltanum á undan Mido en renndi honum þess í stað fram hjá markmanninum og í netið. Seinna markið gerði Defoe og var það vel gert.
Því miður urðu einhverjar tæknilegar bilanir svo við sáum ekki stóran part af fyrri hálfleik. Mér fannst þetta týpískur fyrsti leikur. Menn svolítíð strekktir og reyndu að forðast mistök. En eftir að við skoruðum í lok fyrri hálfleiks náðum við tökum á leiknum fljótlega í seinni hálfleik og þegar seinna markið var komið gáfust Portsmouth menn upp. Við náðum á köflum ágætis samspili en betur má ef duga skal. Þrír leikmenn spiluðu sinn fyrsta deildarleik fyrir Tottenham. Það voru þeir Teemu Tianio, Paul Staltiari og Wayne Routledge.
Liðið: Robinson (Capt); Stalteri, Edman, Dawson, Gardner; Routledge (Mendes, 72), Tainio, Carrick, Reid, Defoe, Mido (Kanoute, 82). Varamenn: Cerny (GK), Naybet, Kelly






