Þrír leikmanna Tottenham voru seldir til Portsmouth í dag fyrir upphæð sem er talin vera í kringum 7 milljónir punda. Pedro Mendes, Noe Pamarot og Sean Davis eru þeir leikmenn sem voru seldir en enginn þeirra hefur náð tryggja sér sæti í liðinu á þessu tímabili.
Þeir voru allir keyptir til félagsins sumarið 2004 og áttu fast sæti í byrjunarliði á fyrri hluta síðasta tímabils.
Mendes verður líklega best minnst fyrir "markið" víðfræga sem hann skoraði á Old Trafford en hann hafði aðeins leikið 6 leiki á þessu tímabili. Hann kom frá Porto eftir sigur þeirra í Meistaradeildinni og sýndi oft að hann var yfirvegaður og öruggur leikmaður.
Sean Davis lenti í erfiðum meiðslum á síðasta tímabili og hefur hann lítið leikið fyrir aðalliðið á þessu tímabili eða 1 leik.
Noe Pamarot lenti einnig í erfiðum meiðslum í fyrra en sneri aftur úr þeim meiðlsum í leiknm gegn Birmingham fyrir skömmu.
Við óskum þeim verlfarnaðar og góðs gengis hjá nýju félagi.






