Tottenham tók á móti Birmingham á White Hart Lane í síðasta leik tímabilsins. Tottenham átti í baráttu við Liverpool um 5.sæti deildarinnar og Birmingham var eitt af fimm liðum sem fyrir leik gat fallið um deild. Tottenham komst yfir í leiknum með marki frá Pavlyuchenko á 49.mínútu og var þá útlitið orðið svart fyrir Birmingham á meðan staðan var góð fyrir Tottenham, en á sama tíma var Liverpool að tapa sínum leik. Craig Gardner náði að jafna leikinn fyrir Birmingham þegar aðeins 10 mínútur voru til leiksloka og virtist allt stefna í að þeir myndu halda sér í deildinni. En á lokamínútunum náði Pavlyuchenko að bæta við öðru marki sínu og Tottenham og innsigla þar með 2-1 sigur Tottenham. Með þessum sigri endaði Tottenham í 5.sæti með 62 stig, en Birmingham þurfti að bíta í það súra epli að falla niður um deild.
Lið Spurs: Cudicini, Kaboul, Dawson, King, Rose, Lennon, Huddlestone (Kranjcar 84), Sandro, Modric, Crouch (Pavlyuchenko 41), Defoe. Ónotaðir varamenn: Gomes, Ekotto, Jenas, Corluka, Palacios.






