Tottenham á toppinn eftir 5-1 sigur

0
668

Í gær tók Hull á móti Tottenham á heimavelli sínum KC Stadium. Bæði lið höfðu spilað vel gegn sitthvoru stórliðinu. Tottenham vann Liverpool á WHL á meðan Hull var óheppið að tapa á útivelli gegn Chelsea, þegar þeir fengu á sig sigurmarkið á 92. mínútu. Það bjuggust því flestir við jöfnum og erfiðum leik, en annað átti eftir að koma á daginn. Aðeins ein breyting var á liði Tottenham sem vann Liverpool á sunnudeginum. Ledley King gat ekki spilað leikinn og Alan Hutton kom nýr inn í liðið og fór í hægri bakvörðinn á meðan Corluka var færður í stöðu miðvarðar. Það var því ljóst að Harry ætlaði sér að nýta hraða leikmanna á borð við Lennon, Ekotto, Modric, Defoe og Keane til að sprengja upp vörn Hull.

 

Leikurinn fór heldur betur fjörlega af stað. Á 6. mínútu kom fyrsta færi leiksins. Huddlestone gaf góða sendingu á Defoe sem sá að Mayhill í marki Hull var kominn út úr markinu og skaut yfir markvörðinn og boltinn lenti ofan á þaknetinu. Leikmenn Tottenham gáfu sem sagt tóninn í upphafi leiks og strax á 10. mínútu kom fyrsta markið. Huddlestone gaf sendingu á Defoe sem dró boltann fram hjá Turner og skaut boltanum framhjá Mayhill og í markið. Staðan því orðin 0-1 Tottenham í vil. Það liðu ekki nema 4 mínútur í næsta mark leiksins eftir stórkostlega gagnsókn Tottenham. Hull sótti að marki Tottenham og áttu gott skot sem Gomes náði að kýla í burtu. Boltinn datt fyrir Defoe sem gaf boltann á Keane sem gaf svo boltann á Palacios sem hafði hlaupið yfir nánast endilangan völlinn og stungið varnarmenn Hull af og var því kominn nánast einn inn fyrir þegar Keane gaf hnitmiðaða stungusendingu á Palacios sem skoraði af öryggi. Þetta var fyrsta mark Palacios í Úrvalsdeildinni.  Staðan því eftir 14 mínútur 0-2 fyrir Spurs sem yfirspiluðu lið Hull.

 

Tottenham varð svo fyrir áfalli þegar í ljós kom að Gomes hafði lent illa þegar hann kýldi boltann sem varð svo upphaf sóknarinnar sem skóp markið. Gomes var leiddur af velli og í hans stað kom Cudicini í markið. Næstu mínútur héldu Tottenham áfram að sækja. Phil Brown stjóri Hull gerði svo strax á 22. mínútu sína fyrstu breytingu þegar hann tók Cousin af velli og setti Geovani inná. Það var greinilegt að Brown breytti rétt því Hull virkuðu strax beittari fram á við eftir þessa skiptingu, og á 25. mínútu náðu þeir að minka muninn. Hunt tók aukaspyrnu nánast upp við endalínu hægramegin og boltinn sveif framhjá varnarmönnum Tottenham og sóknarmönnum Hull og sendingin endaði sem mark. Staðan því 1-2 fyrir Spurs. Markið dugði þó ekki til að slá leikmenn Tottenham út af laginu. Leikmenn Spurs stjórnuðu enn leiknum og áttu færin. Á 45. mínútu fyrrihálfleiks kom svo næsta mark. Huddlestone átti sendingu á Keane sem flikkaði honum frábærlega á Defoe sem fór eins og í fyrsta markinu illa með Turner í vörn Hull og skoraði sitt annað mark í leiknum. Hálfleikstölur því 1-3 og Tottenham að yfirspila Hull á köflum.

 

Síðari hálfleikur fór mun rólegar af stað en sá fyrri og ekki mikið um hættuleg færi til að byrja með. Leikmenn Spurs héldu þó áfram að stjórna leiknum og forustan var aldrei í neinni stórri hættu framan af. Á 78. mínútu fór svo aftur að draga til tíðinda þegar Keane fékk boltann við miðju og gaf á Lennon og tók svo sprettinn inn í átt að marki Hull til að ná fyrirgjöfinni frá Lennon og skallaði boltann framhjá Mayhill í markinu. Staðan því orðin 1-4. Það voru svo leikmenn Tottenham sem héldu áfram að spyrja spurninga upp við mark Hull og á loka andartökum leiksins þegar aðeins sekúndur voru til leiksloka fullkomnaði Defoe þrennuna eftir þríhyrningsspil við Aaron Lennon. Defoe átti þá bilminksskot fyrir utan teig sem hafnaði í markinu. Lokastaðan því 1-5 fyrir Tottenham sem situr á toppnum ásamt Chelsea en Tottenham er með betra markahlutfall. Það er heldur betur ánægjulegt fyrir stuðningsmenn Tottenham að sjá liðið með fullt hús stiga í fyrstu umferðunum eftir að hafa átt verstu byrjun í sögu úrvalsdeildarinnar í fyrra.

Liðið: Gomes (Cudicini, 16), Hutton, Corluka, Bassong, Ekotto, Lennon (Bentley, 85), Huddlestone, Palacios, Modric, Defoe, Keane (Crouch, 81).

 

EKG