Tottenham áfram í 16 liða úrslitin

0
557

Tottenham komst áfram í 16.liða úrslit UEFA Cup eftir að hafa lagt Slavia Prag samanlagt með þremur mörkum gegn tveimur. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham og liðin skildu svo jöfn á White Hart Lane og skoruðu sitthvort markið. Mark Tottenham skoraði Jamie O´Hara strax á 7.mín en liðinu tókst ekki að bæta við og Slavia jafnaði leikinn en komust þó ekki lengra. Tottenham mætir því PSV í næstu umferð.

     Ramos gerði töluverða breytingu á liðinu frá fyrri leik liðanna fyrir viku síðan. Liðið bar þess merki að verið væri að spara suma leikmenn fyrir stórleikinn á Wembley á sunnudaginn. Robinson kom í markið að nýju eftir nokkra fjarveru og vörnin var skipuð þeim Tainio, Kaboul, Woodgate og Chimbonda. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Zokora, Huddlestone og O´Hara og frammi byrjuðu þeir Berbatov og Bent. Á bekknum sátu þeir Cerny, Jenas, Keane, Malbranque, Lee, Rocha og Taarabt.

     Leikmenn Tottenham mættu ákveðnari til leiks í fyrri hálfleik og eftir einungis sjö mínútna leik kom fyrsta mark leiksins. Tottenham fékk innkast frá hægri kantinum og boltinn barst á endanum til Berbatov sem sendi hann á O´Hara og hann kom honum í netið og var þetta fyrsta mark hans fyrir aðallið Tottenham. Eftir þetta átti Tottenham nokkur færi til að auka við forskotið en líkt og í fyrri leik liðanna einkenndist leikurinn af því að menn nýttu ekki færin sín. Huddlestone, Lennon, O´Hara, Tainio og Bent áttu allir ágætisfæri en ýmist fór boltinn framhjá eða markvörður Slavia varði. Fyrsta alvöru færi Slavia Prag kom ekki fyrr en 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik  með skoti frá Jaroslav Cerny en Robinson sýndi góða takta og varði vel. Staðan var því 1-0 í hálfleik heimamönnum í vil.

     Í upphafi seinni hálfleiks gerði Ramos eina breytingu á liðinu. Robbie Keane kom inná og Berbatov fór af velli. Keane var nærri því að skora strax í upphafi eftir fyrirgjöf frá Lennon en boltinn fór rétt framhjá. En á 51.mínútu tókst Slavia Prag að jafna leikinn. Pudil gaf fyrirgjöf frá vinstri kantinum og Krajcik skoraði framhjá Robinson í markinu og Slavia komnir vel inn í leikinn. Stuttu síðar þurfti svo Chimbonda að fara af velli vegna meiðsla en þau eru ekki talin vera alvarleg og einungis varúðarráðstöfun að taka hann af velli. O´Hara færði sig þá í vinstri bakvarðarstöðuna og Malbranque kom inná og leysti O´Hara af velli á vinstri kantinum. Leikmenn Slavia Prag voru ekki á þeim buxunum að gefast upp enda þurftu þeir bara eitt mark til að knýja fram framlengingu. Robinson þurfti aldeilis að bretta upp ermarnar og varði tvisvar vel skallabolta frá gestunum og stuttu síðar áttu þeir skot í stöngina. Ramos kaus þá að gera breytingu á liðinu til að koma í veg fyrir að leikmenn Slavia Prag kæmust enn meira inn í leikinn. Lennon fór af velli og inná kom Jenas. Stuttu síðar átti Malbranque góða sendingu á Bent sem skaut að marki en Vorel varði vel. Á hinum endanum átti Robinson meistara markvörslu eftir aukaspyrnu og Bent skaut í þverslánna á vallarhelmingi Slavia Prag. Leiknum lauk svo með jafntefli og Tottenham mætir því PSV Eindhoven í næstu umferð UEFA cup.

Lið Spurs: Robinson, Tainio, Kaboul, Woodgate, Chimbonda (Malbranque), Lennon (Jenas), Zokora, Huddlestone, O´Hara, Bent, Berbatov (Keane). Ónotaðir varamenn: Cerny, Lee, Rocha, Taarabt.