Eftir tvo sigurleiki í röð var heldur farið að rísa brúnin á Spursurum. Framundan leikur á heimavelli gegn liði sem við höfum oft átt erfitt með. Jol telfdi fram sama liði frá síðasta leik að undanskyldu því að Gardner var meiddur og Rocha kom í hans stað.
Það er ekki oft reyndar allt of sjaldan sem við sjáum byrjum hjá okkar mönnum eins og síðastliðinn sunnudag. Þegar 22. mínútur voru liðnar af leiknum vara staðan 3-0 fyrir Spurs. Tvö mörk frá Keane og eitt frá Jenas sem Keane setti upp tryggðu að Bolton var í raun búið að tapa leiknum á þessum tímapunti. Þeir áttu hreinlega ekkert svar við stórleik okkar manna með Keane, Berbatov og Robinson fremsta meðal jafningja. Allt liðið var að spila mjög vel og baráttan var fyrir hendi. Á 35. mínútu var Keane svo rekinn útaf fyrir að handleika boltan á markteig og víti var dæmt. Menn eru enn að rífast hvort þetta var réttur dómur. Speed skoraði úr vítinu og héldu margir að Bolton ætti eftir að ná að jafna einum fleiri og jafnvel komast yfir og vinna þennan leik. Leikmenn Tottenham voru hinsvegar ekki á sama máli og barátta þeirra var frábær og verður þar að minnast frammistöðu Berbatov sem lék einn frammi eftir brottrekstur Keane og gerði það með þvílíkri snilld að sjaldan hefur annað eins séðst á WHL. Lengst af seinni hálfleik vorum við líklegri til að bæta við marki en Bolton og það var reyndar það sem við gerðum þegar Lennon fékk sendingu fyrir frá Steed á lokamínútu leiksins og afgreiddi boltan í netið.
Robinson, Chimbonda, YP Lee, Dawson, Rocha, Lennon, Jenas, Zokora (Stalteri, 87), Tainio (Malbranque, 68), Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Mido, Defoe.






