Tottenham komið aftur á beinu brautina

0
658

Eftir góða sigurgöngu síðustu mánuði voru áhangendur Tottenham spenntir að sjá hvernig liðið kæmi til baka eftir tap gegn Blackburn um síðustu helgi. Fyrri viðureign okkar gegn West Ham í vetur markaði ákveðin kaflaskil. Eftir að við höfðum unnið West Ham 0-2 á heimavelli West Ham þurftu leikmenn Tottenham að bíða í 11 vikur eftir næsta sigri á útivelli. Hinsvegar skipti árangur á útivöllum ekki máli í þessum leik, enda fór hann fram á hinum gríðarlega gjöfula heimavelli okkar. En við máttum síðast þola tap heima gegn Everton í nóvember á síðasta ári.
Lið West Ham sat í 7. sæti fyrir leik liðanna á meðan Tottenham sat í því 11, og munaði aðeins 6 stigum á liðunum. Það má teljast ansi líklegt að 7. sætið gefi þáttökurétt í UEFA keppnina, þannig að leikurinn var mikilvægur báðum liðum. Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá síðasta leik, þar sem Wilson Palacios var í leikbanni. Tom Huddlestone fékk langþráð tækifæri í hans stað.

Leikurinn fór hægt af stað og fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik. Færin sem við fengum voru meira og minna hálffæri. Á 16 mínútu fékk Huddlestone ágætis færi þegar hann fékk boltann fyrir utan teig eftir hornspyrnu Modric. Hann lét skotið vaða en boltinn fór framhjá. Umdeilt atvik átti sér stað stuttu seinna þegar varnarmaður West Ham virtist hafa handleikið boltann innan teigs eftir skot Robbie Keane. Herra Atkinson dómari lét ekki segjast og bað menn um að halda áfram með leikinn. Besta færi Tottenhammanna átti Huddlestone á 35. mínútu þegar hann átti gott skot að marki sem Robert Green náði að verja. Leikmenn West Ham áttu einnig nokkur færi en Gomes stóð vaktina vel í markinu. Stuðningsmenn beggja liða vonuðust líklega eftir betri leik sinna manna í seinni hálfleik.

Harry Redknapp gerði sína fyrstu skiptingu strax í hálfleik þegar Zokora skokkaði inná völlinn í stað Jenas. Síðari hálfleikurinn byrjaði líkt og fyrri hálfleikurinn endaði. Tottenham hafði yfirhöndina á vellinum án þess að vera skapa sér einhverja virkilega hættu fyrir framan mark West Ham. Á 56. mínútu gerði Redknapp sína aðra skiptingu í leiknum þegar hann tók Darren Bent af velli og bauð Pavlyuchenko velkominn til leiks. Það var strax ljóst að Harry hafði hitt naglann á höfuðið með þessari skiptingu. Allt í einu fór sóknarleikur liðsins að vera markvissari. West Ham var þó ekki búið að syngja sitt síðasta. Di Michele fékk úrvalsfæri eftir að Woodgate varð uppvís af varnarmistökum sem varð til þess að Michele var einn á móti markmanni. Gomes var hinsvegar vel vakandi og náði að koma Woodgate til bjargar. Á 63. mínútu fékk Huddlestone úrvalsfæri þegar hann fékk boltann eftir góða samvinnu Lennon og Keane á hægri kantinum. Huddlestone lét skotið vaða en Robert Green náði að verja. Tveimur mínútum síðar kom langþráð mark í leikinn. Corluka sendir boltann á Modric sem leggur boltann fyrir Pavlyuchenko sem skorar gott mark. Austur-evrópsk samvinna af bestu gerð. Eftir markið lifnaði heldur betur yfir leiknum og bæði lið fengu færi til að skora. En mark Pavlyuchenko var það sem skildi liðin að að lokum. Margir spurðu spurninga um hæfni Redknapp til að skipta réttum mönnum inná á réttum tíma eftir leikinn gegn Blackburn. Þessum spurningum var svarað í þessum leik þar sem allar skiptingar Redknapps virtust skila árangri.

Byrjunarliðið: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Jenas (Zokora), Huddlestone, Modric, Keane, Bent (Pavlyuchenko) .