Tottenham lagði Torino að velli

0
596

Tottenham sigraði lið Torino frá Ítalíu á White Hart Lane í síðasta æfingaleik Spurs fyrir komandi tímabil, en það hefst einmitt eftir viku. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og mörkin skoruðu framherjarnir tveir, Keane og Berbatov.

Martin Jol stillti upp sterku liði gegn Torino. Robinson var á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð Chimbonda, Dawson, Kaboul og Rocha, en hann spilaði stöðu vinstri bakvarðar þar sem Bale, Ekotto og Lee eiga allir við meiðsli að stríða. Á miðjunni voru þeir Malbranque, Jenas, Zokora og Tainio og framherjaparið var skipað þeim Keane og Berbatov.

  Leikurinn var spilaður af hörku frá fyrstu mínútu og einkenndist ekki af þessum týpíska æfingaleikjastíl þar sem lítið er um tæklingar. Strax á fjórðu mínútu þurfti sjúkralið spurs að koma inn á völlinn þar sem Malbranque var tæklaður harkalega en hann kom svo aftur inná stuttu síðar. Eitthvað var áfram um tæklingar og nokkur færi en á 16. mínútu tók Kaboul aukaspyrnu og skaut í átt að marki en skotið varið og barst boltinn aftur til hans. Hann skallaði þá boltann strax til Keane sem lét hann falla aftur fyrir vinstri öxl sína, sneri sér við og skaut í vinstra hornið. 1-0 fyrir Tottenham. Tottenham var svo mun betra liðið það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og áttu m.a. Rocha, Berbatov og Tainio dauðafæri en allt kom fyrir ekki og staðan 1-0 í hálfleik.

  Tottenham gerði engar skiptingar í hálfleik en Torino gerði tvær. Torino átti hættulegt færi strax á 48. mín en svo hélt Tottenham áfram þar sem frá var horfið í fyrri hálfleik og átti nokkrar tilraunir að marki og ma. 2 hættuleg færi. En það var svo á 64.mínútu sem Tottenham bætti við marki. Chimbonda átti fyrirgjöf á fjarstöngina þar sem Malbranque var frír og tók við boltanum, gerði vel og lék á markmann Torino og gaf boltann á Berbatov sem potaði honum inn. Staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham. Eftir markið gerði Jol tvær breytingar á liðinu, Bent og Huddlestone komu inná fyrir Zokora og Tainio. Keane bakkaði þá í stöðu hægri kantmanns, Malbranque fór í vinstri kantstöðuna og Huddlestone tók stöðu Zokora á miðri miðjunni. Bent var ekki lengi að smella í gírinn og átti 2 tilraunir að marki. Á 73. og 74. mínútu voru gerðar  3 breytingar á liðinu. Fyrst komu Defoe og Stalteri inná fyrir Berbatov og Rocha og svo Routledge fyrir Malbranque en sá síðarnefndi stóð sig einstaklega vel í þessum leik. Torino gerðu tilraunir til að minnka muninn og Robbo þurfti aðeins að taka á honum stóra sínum í markinu til að halda hreinu. Á 85. mín var Keane svo skipt útaf fyrir Taarabt. En þrátt fyrir nokkrar marktilraunir urðu mörkin ekki fleiri og lauk leiknum því með 2-0 sigri Tottenham.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Rocha (Stalteri 73), Malbranque (Routledge 74), Jenas, Zokora (Huddlestone 65), Tainio (Bent 65), Keane (Taarabt 85), Berbatov (Defoe 73). Ónotaðir varamenn: Cerny, Ifil.

 

DEILA
Fyrri fréttGhaly ekki til Birmingham!!!
Næsta fréttTippleikur