Tottenham leikur til úrslita

0
634

Tottenham tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn á Barclays Asian Trophy, æfingamóti í Kína, þegar þeir lögðu West Ham af velli, 1-0. Mótið er fjögurra liða mót en ásamt Tottenham og West Ham taka Hull og Beijing Gouan þátt í mótinu. Tottenham menn spiluðu einn sinn besta leik á undirbúningstímabilinu og áttu nokkur góð færi í leiknum en aðeins eitt mark skildi liðin að, mark frá Jermain Defoe. Liðið mætir svo Hull í úrslitaleiknum í hádeginu á föstudaginn að íslenskum tíma.

 

Harry stillti upp tiltölulega sterku byrjunarliði en meiðsli miðvarða liðsins þýddu það hann reyndi aðra menn í miðri vörninni líkt og á Wembley mótinu. Liðinu var þannig stillt upp: Cudicini var í markinu en vörnin var skipuð þeim Hutton, Corluka, Huddlestone og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Naughton, Palacios, O´Hara og Modric og frammi spiluðu þeir Defoe og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Gomes, Chimbonda, Dervite, Rose, Obika, Bostock, Livermore, Lennon og Keane.

 

Leikurinn var fjörugur allt frá fyrstu mínútu en eftir aðeins nokkurra sekúndna leik sendi O´Hara boltann á Naughton á hægri kantinum sem ákvað að skjóta að markinu en Green náði að verja boltann í horn. Modric skaut svo rétt framhjá eftir að hornspyrnan var tekin. O´Hara var líflegur á miðjunni í leiknum og framherjarnir voru iðnir við að reyna að koma boltanum framhjá Green í markinu. Pavlyuchenko átti nokkur góð færi, m.a. skot sem hafnaði í stönginni. Naughton, Huddlestone og Modric áttu allir góð færi til að skora í fyrri hálfleik en skot þeirra fóru rétt framhjá. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en algjör einstefna var að marki West Ham og ekki reyndi mikið á Cudicini í marki Tottenham.

 

Harry gerði aðeins eina breytingu á liðinu í hálfleik. Pavlyuchenko fór af velli og Keane kom inná í hans stað. Fljótlega í upphafi seinni hálfleiks átti Keane góða sendingu á Defoe sem skaut að markinu en skot hans fór rétt yfir markið. Seinni hálfleikur var ekki ósvipaður þeim fyrri að því leytinu til að West Ham menn áttu í fullu með að verjast og sköpuðu sér fá færi á meðan Tottenham menn sóttu stíft. Það gekk þó hins vegar illa að klára færin. Þegar um 20 mínútur voru til leiksloka gerði Harry aðra skiptingu, Naughton fór af velli en Lennon kom inná í hans stað. Áttu þessi skipti eftir að reynast liðinu vel því á 75. mínútu sendi Lennon boltann á Defoe sem kom boltanum í net West Ham manna. Staðan orðin 1-0. Hættulegasta færi West Ham manna kom á 82. mínútu þegar Cole skaut framhjá markinu. Stuttu síðar kom Livermore inná í stað Palacios. En mörkin urðu ekki fleiri og leiknum lauk því með sigri Tottenham sem mætir Hull í úrslitaleiknum á mótinu á föstudaginn kl.12:30 að íslenskum tíma.

 

Lið Spurs: Cudicini, Hutton, Corluka, Huddlestone, Ekotto, Naughton (Lennon), Palacios (Livermore), O´Hara, Modric, Pavlyuchenko (Keane), Defoe. Ónotaðir varamenn: Gomes, Chimbonda, Dervite, Rose, Obika og Bostock.

 

SAJ