Í dag var spilaður síðasti æfingaleikur Tottenham fyrir nýtt tímabil. Tottenham tók á móti hinu fornfræga gríska liði Olympiakos. Peter Crouch og Sebastien Bassong nýju liðsmenn Spurs þreyttu frumraun sína í búning Tottenham, og byrjuðu leikinn. Harry stillti þó ekki upp sínu sterkasta liði í fyrrihálfleik, samt var liðið nokkuð sterkt. Harry átti þó eftir að gera miklar breytingar á liðinu í leiknum. Hann notaði allar 11 skiptingarnar sínar í leiknum. Liðið sem byrjaði leikinn var þannig skipað. Gomes, Naughton, Bassong, King, Ekotto, Bentley, O‘Hara, Huddlestone, Rose, Keane og Crouch.
Leikurinn fór hægt af stað og í raun var allur fyrri hálfleikur mjög tíðindasnauður. Aðeins eitt skot kom á rammann í fyrri hálfleik og það var á mark Tottenham 40. mínútu. En Gomes náði að verja vel. Þrátt fyrir að hvorugt liðið hafi verið með skotsýningu á ramma andstæðinganna má segja að Tottenham hafi haft undirtökin í leiknum. Það voru leikmenn Tottenham sem sóttu en leikmenn Olympiakos vörðust og reyndu hraðar sóknir þegar færi gafst.
Harry Redknapp gerði hvorki fleiri né færri en 7 skiptingar í hálfleik. Cudicini, Corluka, Chimbonda, Lennon, Modric, Defoe og Pavlyuchenko komu inná fyrir, Gomes, Naughton, King, O‘Hara, Rose, Keane og Crouch
Þetta virtist hafa góð áhrif á leikinn og leikmenn Spurs voru enn beittari fram á við en áður. Strax á 48 mínútu átti Defoe fyrsta skot á mark Olympiakos en markvörður þeirra gerði vel með að verja. 10 mínútum síðar þurfti Cudicini að taka á honum stóra sínum þegar leikmenn Olympiakos áttu góðan skalla á markið en Cudicini var vel á verði. Á 66. mínútu hrökk svo Tottenhamvélin í fluggírinn og ef síðustu 30 mínútur leiksins er forsmekkur þess sem koma skal í vetur, geta stuðningsmenn glaðst. Á 66 mínútu kom fyrsta mark leiksins. Eftir samleik Modric og Lennon fékk Pavlyuchenko boltann inn í teig og þrumaði boltanum í netið. Staðan því orðin 1-0 fyrir Tottenham. Strax eftir markið kom Boateng inn á í stað Bentley. Á 67. mínútu björgðu leikmenn Olympiakos á línu þegar Bassong skallaði í átt að marki og boltinn virtist ætla silast inn fyrir línuna þegar varnarmaður Olympiakos náði að hreinsa boltann burtu. Tæpri mínútu síðar þurftu leikmenn Olympiakos aftur að hreinsa boltann af línunni. Boateng átti skot að marki sem markmaðurinn náði að slá í burtu en þó aðeins í fætur Chimbonda tók utanfótarskot að því er virtist á opið markið, en varnarmaður Olympiakos náði á síðustu stundu að koma í veg fyrir mark. Stórsóknin hélt áfram og á 68. mínútu kom annað mark leiksins. Pavlyuchenko fékk boltann á nærstöng eftir hornspyrnu og þrumaði boltanum inn í hættusvæðið þar sem Corluka slæmdi fætinum í boltann og inn fór knötturinn. Staðan því 2-0 og máttu leikmenn Olympiakos teljast heppnir að vera ekki fleiri mörkum undir. Eftir þennan hamagang róaðist aðeins leikurinn aftur. En á 77. mínútu dró aftur til tíðinda. Pavlyuchenko átti gott skot á markið sem Padro í markinu náði að slá í burtu, en boltinn hrökk í fætur Defoe sem virtist vera að sleppa fram hjá varnarmanni þegar varnarmaðurinn felldi Defoe inn í teignum. Defoe vildi skiljanlega fá dæmda vítaspyrnu, en dómarinn var á öðru máli. Mínútu síðar náði Defoe að bæta upp fyrir vítaspyrnuna sem hann fékk ekki með því að skora þriðja mark leiksins. Defoe stakk sér þá fram hjá varnarmönnum og náði hnitmiðuðu skoti af 17 metra færi og boltinn söng í netinu líkt og áhorfendur sungu á pöllunum. Það sem eftir lifði leiks hélt Tottenham áfram að sækja og mega leikmenn Olympiakos þakka heilladísum sínum fyrir að sleppa með aðeins 3-0 tap.
Liðið: Gomes (Cudicini 45), Naughton (Chimbonda 45), Bassong, King (Corluka 45), Ekotto, Bentley (Boateng 66), Huddlestone (Bostock 80), O‘Hara (Modric 45 (Livermore 80)), Rose (Lennon 45), Crouch (Pavlyuchenko 45), Keane (Defoe 45)
Ónotaðir varamenn: Obika.
EKG






