Tottenham sækir um pláss í Intertoto

0
566

Búið er að staðfesta á heimasíðu Tottenham að sótt hafi verið um þátttökurétt í Intertoto.

Það var greint frá því í blaðinu Guardian í gær að Totttenham hafi sótt um þátttökurétt í Intertoto keppninni í sumar. Ef þetta er satt þá er það í fyrsta skipti sem Tottenham sækir um þátttöku í þessari keppni. Everton, Blackburn, Bolton, Fulham, Middlesbrough, og Newcastle hafa öll sótt um ásamt Tottenham.

Þeir hafa reyndar tekið þátt einu sinni en þá voru þeir neyddir til þátttöku. Hvað ræður breyttu viðhorfi er ekki gott að segja én góður árangur Newcastle kann að spila þar inní. Þetta er örugglega hugsað ef satt er sem varaleið ef liðinu tekst ekki að komast í úrslit FA bikarsins eða vinna UEFA bikarinn eða enda í einu af 6 efstu sætum deildarinnar. Nú er liðið aðeins sex sitg frá 6. sæti og ef Utd. og Chelsea fara alla leið í úrslit FA bikarsins þá væri sjöunda sætið öruggt Evrópusæti. Við erum þremur stigum frá því sæti í dag.