Tottenham sigrar Chelsea í Lundúnarslag

0
679

Það var búist við hörkuleik á White Hart Lane í dag þegar Tottenham tók á móti grönnum sínum Chelsea. Tottenham hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og hafa ekki tapað leik í deildinni frá því í janúar. Tottenham hafði fyrir leikinn ekki enn tapað gegn „stóru liðunum 4“ í deildinni og höfðu um síðustu helgi unnið Aston Villa sem sat þá í 4 sæti deildarinnar. Chelsea hefur hinsvegar ekki náð fleiri stigum gegn neinu öðru liði í úrvalsdeildinni en gegn Tottenham. Það var líka ljóst að eftir tap Manchester United um síðustu helgi yrði Chelsea að vinna leikinn til að halda sér í baráttunni um titilinn. Aukin heldur hafði Chelsea unnið alla sína leiki í deildinni frá brotthvarfi Scolari. Til að magna spennuna og eftirvæntinguna eftir leiknum var honum frestað um hálftíma af öryggisástæðum.
Harry Redknapp stillti upp sama liði og mætti Aston Villa um síðustu helgi, fyrir utan að Corluka kom inn í hægri bakvörðinn í stað Zokora.

Bæði lið fóru varfærnislega inn í leikinn. Frá fyrstu mínútu var ljóst að Tottenham ætlaði að sitja aftarlega á vellinum og treysta á hraðar sóknir. Fyrri hálfleikur var í járnum. Hvorugt liðið náði yfirhöndinni á vellinum, en bæði lið áttu ágætis færi í leiknum. Á 8. mínútu þurfti Gomes að taka á honum stóra sínum þegar Essien átti ágætis skot við vítateiginn sem Gomes varði, en náði ekki að halda boltanum. Gomes var þó fljótur að átta sig og náði boltanum á undan Belletti. Mínútu seinna komst Jenas í ágætt færi þegar Terry skallar burt fyrirgjöf Lennons og boltinn berst til Jenas sem á gott skot, en það fer rétt framhjá. Á 18. mínútu komast leikmenn Tottenham nálægt því að skora þegar Keane kemst inn fyrir vörn Chelsea eftir langa sendingu frá Gomes í markinu. Keane reynir að lyfta boltanum yfir Cech í markinu, en Chech gerir vel í að koma hönd á boltann. Staðan í hálfleik 0-0.

Leikmenn Tottenham mættu vel stemmdir í síðari hálfleik og eftir tæplega 5 mínútna leik skoruðu leikmenn Tottenham úr glæsilegri sókn. Lennon fær boltann á hægri kantinum og virðist ætla að hlaupa framhjá Ashley Cole en stöðvar skyndilega og býr þannig til pláss fyrir sig til að senda boltann inn í teig þar sem Luka Modric er mættur og skýtur viðstöðulaust, föstu skoti upp við stöngina og í netið. Algjörlega óverjandi fyrir Cech í markinu. Leikmenn Chelsea virtust slegnir af laginu og næstu mínúturnar höfðu leikmenn Tottenham yfirhöndina. Stuttu síðar fór að hvíslast um völlinn að Manchester United hefði tapað gegn Fulham. Það var því allt undir hjá Chelsea til að reyna að minka muninn á toppliðið. Á 63. mínútu komust skall hurð nærri hælum við mark Tottenham. Quaresma reynir fyrirgjöf inn í teiginn frá vinstri, boltinn fer í Ekotto og lendir upp við stöngina hægramegin hjá Tottenham þar sem Lampart, Corluka og Gomes fara allir í boltann, en boltinn fer yfir endalínuna og niðurstaðan hornspyrna. Tottenham fengu líka sín færi. Á 71. mínútu fara leikmenn Tottenham í skyndisókn. Jenas gefur boltann á Bent sem reynir sendingu á Lennon sem er einn og óvaldaður á hægri kantinum. Boltinn fer hinsvegar í varnarmann Chelsea og berst frá honum til fyrirliðans Robbie Keane sem á gott skot sem fer rétt framhjá markinu. Á 79. mínútu verða áhorfendur á WHL vitni af einni af markvörslum tímabilsins hjá Gomes. Lampard á góða sendingu inn í teiginn þar sem Terry kemur askvaðandi einn og óvaldaður og á þrumuskot af 9 metrafæri. Gomes nær að slæma hendi í boltann og með ótrúlegri snerpu nær svo að slá boltann í burtu eftir að hann varði hann. Á 86. mínútu gerir Harry Redknapp sína fyrstu skiptingu eftir að Modric sést biðja um að verða skipt útaf. Redknapp setur O‘Hara inná í stað Modric á vinstri vængnum. Á 90. mínútu sést að það verða 4 mínútur í uppbótartíma. Á þriðju mínútu uppbótartímans vaka heilladísirnar heldur betur yfir Tottenham þegar Alex á hörkuskalla í jörðina og þaðan í slánna, Gomes er vel vakandi eftir það og slæmir hendinni í knöttinn sem er í þann mund að falla fyrir leikmann Chelsea. Stuðningsmönnum Tottenham var augljóslega létt. Þegar 2 sekúndur voru eftir af uppbótartíma gerir Redknapp sína aðra skiptingu þegar hann tekur Lennon af velli fyrir Zokora.
Niðurstaðan á WHL því 1-0 og Tottenham virðast vera komnir á fljúgandi siglingu upp töfluna.

 

Byrjunarliðin: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon (Zokora), Palacios, Jenas, Modric (O‘Hara), Keane, Bent.

Ónotaðir varnarmenn: Cudicini, Dawson, Bentley, Pavlyuchenko, Huddlestone

 

EKG