UEFA bikar seinni leikur 3-2

0
626

Tottenham er komið í átta liða úrslit UEFA bikarsins eftir sigur á Braga frá Portúgal 6-4 samanlagt. Seinni leikurinn endaði eins og sá fyrri 3-2 fyrir Tottenham. Besti maður Tottenham Berbatov gerði tvö markanna og lagði upp það þriðja.

Flestir áttu vona á að Jol hvíldi Berbatov í ljósi nárameiðsla sem hrjá hann en svo var ekki. Keane kom aftur inn í byrjunarliðið ásamt Steed og Chimbonda sem varða að spila sem miðvörður vegna meiðsla Gardner. Rocha var ólöglegur þar sem hann hafði spilað með Benfica áður í Meistaradeildinni en Benfica er núna í UEFA bikarnum. Þá kom Hudd inn á miðjuna vegna þess að Tainio var tæpur og var á bekknum. Við byrjuðum betur og spiluðum fínan bolta. Það var því áfall að fá á sig mark eftir aukaspyrnu þegar Hudd stökk upp og ætlaði eflaust að skalla boltann aftur fyrir en þess í stað sveif boltinn í fínum boga yfir Cerny í markinu og inn. Það tók okkur ekki langan tíma að jafna og þar var að verki Berbatov eftir sendingu frá Keane. Hann var svo aftur á ferðinni skömmu fyrir hlé en þá bætti Hudd fyrir sjálfsmarkið með frábærri aukaspyrnu á Berba sem átti ekki í vandræðum með að setja boltann fram hjá markmanninum í þrönga gallanum. Aftur leyfðum við Braga að komast inn í leikinn í seinni hálfleik en þá skoruðu þeir beint úr aukaspyrnu. Staðan samanlagt orðin 5-4 fyrir okkur og þeim dugði eitt mark enn til að knýja fram framlengingu og aðeins hálftími eftir. Steed var ekki á þeim buxunum því þegar fimmtán mínútur voru eftir fékk hann boltan frá Lee fór upp völlinn gaf á Berbatov sem nikkaði boltanum með tánni yfir varnarmenn Braga beint fyrir Steed sem hafi haldið hlaupinu áfram inn í teig. Steed sendi boltann hárfínt fram hjá markmanninum (þessum í þrönga gallanum). Þar með var málið dautt því Braga hefði þurft að skora tvö mörk og það var bara aldrei sjans. Við unnum þetta í raun örugglega en gáfum þeim helst til mikinn sjans með að láta þá skora en hvað um það við erum komnir áfram. Bestu menn Berbatov, Dawson, Lennon og Keane. Aðrir stóðu fyllilega fyrir sínu.
Liðið: 
Cerny, Stalteri, Chimbonda, Dawson, YP Lee, Malbranque, Zokora, Huddlestone, Lennon, (Ghaly, 81) Berbatov, Keane (Defoe, 65). Varamenn: Alnwick, C Lee, Mido, Taarabt, Tainio.